Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Side 149

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Side 149
LÝSING 0 G SKÝRING Á L B S. 2574—2575 8vo 149 17. og 16. öld, og hefur höf. haft það allt eftir skráðum heimildum. Á síðari síðu 82. blaðs er svo rakin móðurætt Skúla landfógeta. Á 83. blaði er rakin ætt síra Sæmundar á Miklabæ Magnússonar í Bræðratungu Sigurðssonar. Magnús er þar talinn hafa búið á Skútustöðum, en þar bjó faðir hans. Magnús sjálfur mun a. m. k. lengst hafa búið syðra, og við Bræðratungu er hann jafnan kenndur. Síðan er rakið frændfólk hans, Skarðverjar og Hrappseyjarfólk, og bendir orðalagið „ég hygg“ til þess, að höf. hafi a. m. k. að nokkru leyti frumskráð þetta. Margt af þessu fólki var stórefnað og landskunnugt og því mun höf. hafa kunnað á því sæmileg skil þótt það byggi fjarri honum. Á annarri síðu 84. blaðs er þess getið, að Sigfús lögréttumaður á Öxnhóli Ólafsson hafi átt 2 Jóna fyrir syni, og annar hafi kvænzt fyrir sunnan Þorbjörgu Jónsdóttur Hreggviðssonar, en þeirra dóttir hafi verið Guðrún kona Rögnvaldar, sem bjó á Öxn- hóli 1703, Jónssonar. Nú segir manntalið 1703, að móðir Guðrúnar hafi verið Þor- hjörg Magnúsdóttir, og er því ættfærsla höfundar á henni röng. Framhaldið af þessu virðist koma á efri helmingi fyrri síðu 85. blaðs, er segir, að hinn Jóninn Sigfússon hafi verið faðir Guðrúnar konu Hálfdanar bónda á Bakka og Steinsstöðum í Öxnadal Björnssonar, og kemur þetta heim við manntalið 1703. Ekki hefur höf. verið nákunnugur þessum ættum, enda er hann allfjarri þeim slóðum, er það bjó á. Má því ætla, að Jónarnir hafi átt nokkur fleiri börn, og víst er, að sonur annars þeirra var kunnur maður, Sigfús lögréttumaður í Súðavík. Á neðra helmingi annarrar síðu 84. blaðs er getið tveggja dætra Ólafs lögréttu- manns í Núpufelli Jónssonar, og á neðra helmingi fyrri síðu 85. blaðs er getið þriðju dóttur hans og rakið frá henni. Á annarri síðu 85. blaðs og á næstu blöðum, fram á 88. blað, eru raktir niðjar síra Jóns í Vatnsfirði Arasonar og Magnúsar sýslumanns á Reykhólum, bróður hans. Þar mun sjálfsagt að miklu leyti vera farið eftir skráðum heimildum, en þó mun höf. sjálfur hafa kunnað beztu skil á ættfólki síra Gunnlaugs á Laugalandi Eiríkssonar og konu síra Gunnlaugs nefnir hann þar, skýtur því inn í autt bil, sem skilið hefur verið eftir í handritinu. Á 88. blaði er rakin ætt Boga Benediktssonar í Hrappsey og síðar á sama blaði tek- ur við ættartala Guðnýjar Björnsdóttur konu Þorláks í Miklagarði Grímssonar. í föðurætt Guðnýjar er sú skekkja, að kona Bjarna lögréttumanns í Skriðu Pálssonar er talin Halldóra yngri dóttir Jóns sýslumanns á Grund Björnssonar. Hún var systir Jóns á Grund en ekki dóttir hans og hét að vísu Halldóra. Móðurætt Guðnýjar hefur verið rakin nokkuð framar, á 16. og 17. blaði, og hún var í ætt við Guðmund í Mel- gerði. Hér hefur höf. fyrst skrifað, að Grímur í Lundi, faðir Þóreyjar ömmu Guðnýjar hafi verið Bjarnason, bróðir síra Odds á Möðruvöllum í Hörgárdal Bjarnasonar. Föður þeirra hefur hann talið Bjarna Jónsson og föður Bjarna Jón, sem átti Drafla- staði í Fnjóskadal „og var fornemi maður ættaður að vestan“. Síðar hefur höf. fengið öruggari vitneskju um Grím og breytt „Bjarnason“ í Jónsson og „bróður síra Odds“ í jöðurbróður síra Odds, og er þetta vafalaust hið rétta. Jón faðir Gríms í Lundi og Bjarna virðist eftir öllum líkum að dæma hafa verið sonur Jóns yngra lögréttumanns
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.