Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Side 162

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Side 162
162 EINAR BJARNASON 7 barnanna. Hið áttunda mun vera Elín, sem Espholin telur hafa farið vestur með síra Hjalta, en 1703 er 28 ára á Stað á Reykjanesi. Því mun það vera málum blandað, sem Espholin segir í ættatölum sínum, að eitt þessara Þorsteinsbarna hafi verið Erlendur forpagtari á Barðaströnd (Espholin p. 1145). í kaflanum um síra Jón Hjaltason segir að Hjalti, Páll og Magnús, feðgarnir, faðir, afi og langafi síra Jóns, hafi verið lögréttumenn og búið að Teigi. Magnús Hjaltason var lögréttumaður, en hvorugur hinna. Um ætt Helgu konu síra Jóns Hjaltasonar segir hér einungis, að Jón faðir hennar hafi búið á Völlum í Eyjafirði á undan síra Jóni, sem þar bjó fyrst, en síðar á Núpufelli, áður en hann fór að Saurbæ. Höfundur er ekki sjálfum sér samkvæmur um ætt Helgu. Hann er sjálfur frumheimildarmaður að niðja- tali frá henni og frændfólki hennar og vegna þess, að hann er reikull í ættfærslunni á Helgu, verður að reyna að leita annarra heimilda um ætt þessa og bera það, sem þær kunna að segja, saman við handritið. Manntalið 1703 sýnir það, að Helga er um mannsaldri yngri en það fólk, sem höf. ýmist telur systkini hennar eða móðursystkini. Þessvegna eru strax meiri líkur fyrir því, að þau séu móðursystkini en systkini. Þórunn Jónsdóttir er móðir Helgu nefnd og faðir hennar Jón Jónsson. Móðir systkinanna Einars í Melgerði, Jóns í Hlíðarhaga, Ingiríðar konu Péturs á Skáldstöðum Jónssonar, Elínar konu Sigurðar í Kaupangi Þorlákssonar og Arna á Krýnastöðum er einnig sum- staðar í handritinu nefnd Þórunn Jónsdóttir, en annarsstaðar Þorgerður Arnadóttir. Hið síðara hygg ég vera rétt og hið fyrra vera misskilning, sem stafi af því, að sumir heimildarmenn höfundar muni hafa ætlað, að Helga í Saurbæ hafi verið ein þessara systkina, en ekki systurdóttir þeirra. Jón Magnússon, sem 1703 er sýslumaður í Búðardal í Saurbæ, en síðar bjó á Sól- heimum í Sæmundarhlíð, hefur skrifað ættartölubók, og getur þess þar, að Bjarni sonur Þorsteins nokkurs og Þorbjargar Bjarnadóttur lögréttumanns í Skriðu Pálsson- ar hafi verið kvæntur Snjálaugu Jónsdóttur Ivarssonar og Þorgerðar Árnadóttur Geir- mundarsonar. Dóttir Bjarna og Snjálaugar var Sigríður, sem 1703 er 58 ára gift Snorra bónda á Ósi í Hörgárdal Þorvaldssyni. Foreldrar Snjálaugar, Jón ívarsson og Þorgerður Árnadóttir, hafa verið á aldri við foreldra hinna fyrrnefndu systkina. Þegar athuguð eru nöfnin á niðjum systkinanna, Ivar, Þorgerður, Árni og hið sjaldgæfa nafn Aldís, en svo hét kona Árna Geirmundarsonar, og það nafn bar ein dóttir Péturs á Skáldstöðum, fer mönnum ekki að blandast hugur um það, að Snjálaug kona Bjarna Þorsteinssonar hafi verið ein hinna fyrrgreindu systkina og að foreldrar þeirra hafi verið Jón ívarsson og Þorgerður dóttir Árna lögréttumanns í Vaðlaþingi Geirmundar- sonar prests á Hrafnagili Jónssonar. Höf. nefnir ekki Snjálaugu meðal systkinanna enda er hún og niðjar hennar orðin allfjarlæg höfundi, en hin systkinin og niðjar þeirra eru miklu nær höfundi. Snjálaugarnafnið ber ein dótturdóttir Einars í Melgerði. Fyrir ættfærslu þessari má færa enn fleiri líkur, en ekki er rúm til þess hér. Saurbæjarprestatalinu lýkur með síra Þorsteini Jónssyni, sem dó 1748, og er þá komið fram á 145. blað. Þá tekur við móðurætt Ólafs bónda á Öngulstöðum Sigfússon- ar, en kona hans, Þóra Jónsdóttir, og höf. voru systkinabörn. í móðurættinni fatast höf.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.