Réttur - 01.01.1958, Blaðsíða 43
R É T T U R
43
slíkar jarðir fara í eyði, en það eru eðlilegar lífskröfur sveira-
fólksins, sem leggja þær í eyði í svipinn. Margt af þessum eyði-
jörðum á eftir að byggjast aftur eftir nokkra áratugi, þegar vax-
andi markaður í stækkandi bæjum kallar á meiri landbúnaðar-
framleiðslu og býður sveitafólkinu betri kjör við hana en hægt
er að búa því, þegar offramleiðsla er á landbúnaðarvörum.
Tækniþróun þessara áramga og nýjungar í samfélagsháttum
opna möguleika í sambandi við dreifbýlið og framleiðslu þess,
sem enn eru ókannaðir. „Kommúnurnar", framleiðslu-samfélögin,
sem kínversk alþýða er að skipuleggja hjá sér nú með svo undra-
verðum árangri er fyrirbrigði, sem íslenzk alþýða gæti vissulega
lært margt af.
Island bíður enn eftir nýju landnámi barna sinna. En landnám
nú á tímum verður að framkvæma með samræmdu átaki ein-
staklinga og þjóðarheildar. Vélatækni og skipulagsbákn nútímans
krefjast slíkra vinnubragða, ef góð lífskjör eiga að verða hlut-
skipti landnemans, — en ekki hitt að unnið hafa „í örbirgð kaldri
æfiverk á hálfum aldri."
Öryggi um afkomu, hámark afkasta, einbeiting krafta krefst
allt saman þeirra vinnubragða, sem heildarstjórn á þjóðarbú-
skapnum ein gemr látið í té, ef hún vinnur í samræmi og sam-
starfi við vinnandi fólk.
Verkalýðshreyfingin hefur alltaf krafizt slíkrar heildarstjórnar,
þegar hún hefur verið í samstarfi við Framsókn. En afturhaldið
í Framsókn hefur alltaf hindrað þessa höfuðforsendu skynsamlegs
þjóðarbúskapar á íslandi. Slík heildarstjórn er vissulega fyrst og
fremst nauðsyn fyrir þjóðarbúskapinn í heild og þarmeð hinar
miklu framleiðslustöðvar þéttbýlisins til þess að stjórna réttri
fjárfestingu þar, en án slíkrar heildarstjórnar mun dreifbýlið
smátt og smátt veslast upp vegna hinnar blindu kapítalistísku
þróunar, sem þá réði í þjóðfélaginu.
Svik Framsóknar á heitum, sem hún gaf um framkvæmd þessa
fyrirkomulags, er einn skýrasti votturinn um vald afturhaldsins í
þeim flokki og vilja þess til að samlaga stefnu sína frekar „frjálsu
braski" auðvaldsins en hugmyndum verkalýðsins um samvinnu og
skipulag á þjóðarbúskapnum.