Réttur - 01.01.1958, Blaðsíða 76
76
RÉTTDR
Það dugar ekki annað fyrir Island en horfa raunsætt
á afstöðu sína í viðskiptamálum veraldarinnar. Að ætla
í blindri trú á kosti stjómlausrar samkeppni að kasta
þjóðarbúskap vorum út í hringiðu efnahagslífs auðvalds
heimsins, er glapræði, er leiðir til glötunar.
Það er aðeins um eitt að ræða fyrir svo lítið þjóðfélag
sem vort íslenzka þjóðfélag nú á tímum, — á hnignunar-
skeiði auðvaldsþjóðfélagsins, á tímum hinna risavöxnu
einokunarhringa í hamslausri leit þeirra að auknum gróða
á minnkandi heimsmarkaði auðvaldsins •— og það er:
að njóta í eins ríkum mæli og pólitískar aðstæður leyfa
oss: ANNARSVEGAR kosta sósíalismans sem STEFNTJ,
með því að Iaga þjóðskipulag vort að kenningum sósíalism-
ans á vissum sviðum, t. d. með heildarstjóm á f járfestingu
og skipulagðri utanríltisverzlun, að svo miklu leyti sem
slíkt er yfirleitt hugsanlegt með borgaralegt þjóðfélag,
eins og vort, — og HINSVEGAR njóta kosta sósíalismans
sem ÞJÓÐSKEPULAGS, m. ö. orðmn markaðsöryggis þess,
sem hin kreppulausu þjóðfélög sósíalismans bjóða.
Með því að sameina krafta vora fvona og skipuleggja
þjóðfélag vort á þennan hátt, gerum við tvennt í senn:
Við berjumst eins vel og hægt er fyrir tilveru vorri í hin-
um kapítalistíska heimi, með því að vera eins sterkir og
vel skipulagðir sem ein viðskiptaheild og oss er unnt, til
þess að standast í því harða viðskiptastríði, sem þar er
háð, þar sem aldrei er um miskunn spurt og hinir fátæku
og smáu vægðarlaust troðnir undir, ef þeir eru of veikir.
Og við njótum friðsamlegra, skipulagðra viðskipti við
hinn sósíalistíska heim, á grundvelli öruggra viðskipta-
samninga, oftast skipulögðum til margra ára samkvæmt
fyrirfram gerðum áætlunum, eins og sósíalismanum er
eiginlegt.
En það er mikið í húfi að það takist nú að sameina þjóð-
ina, en ekki sundra henni og tvístra. Það hefur áður orðið
oss Islendingum dýrt að láta undan þrýstingi amerísks
auðvalds í efnahagsmálum okkar. Það tafði raunverulega