Réttur - 01.01.1958, Blaðsíða 139
RÉTTDB
139
landanna hvers um sig, bæði pólitískt og efnahagslegt, og eins
um það að efla hið sósíalistíska samveldi í heild. Sósíalistísku ríkin
munu halda áfram að auka og fullkomna þessa samvinnu sína
í efnahags- og menningarmálum.
Það er einnig stefna sósíalistísku ríkjanna að efla á allan hátt
efnahags- og menningartengsl við önnur ríki, þau sem það vilja,
samkvæmt meginreglu jafnréttis, gagnkvæms hagnaðar og af-
skiptaleysis hvors aðilans um sig um innanlandsmál hins.
Samstaða sósíalistísku ríkjanna felur ekki í sér neina andstöðu
við önnur ríki. Hún þjónar meira að segja beinlínis hagsmunum
allra friðsamra þjóða, tálmar árásarfyrirætlunum hinna striðs-
sinnuðu afla heimsveldisstefnunnar og styrkir á allan hátt frið-
aröflin. Sósíalistísku ríkin eru andstæð þeirri stefnu að skipta
heiminum í andstæð hernaðarbandalög. En með því að vesturveld-
in neita að fallast á tiilögur sósialistísku landanna um afnám allra
hernaðarbandalaga, er óhjákvæmilegt að varðveita og efla Var-
sjárbandalagið, sem er eingöngu til varnar, þjónar öryggi Evrópu-
þjóðanna og styður stefnu friðarins um gervallan heim.
Samfélag sósíalistísku landanna grundvallast á sameiginlegri
sósíalistískri stefnu, sameiginlegu stéttareðli þjóðfélags, efnahags-
kerfis og ríkisvalds, nauðsyn á aðstoð þeirra hvers við annað, sam-
eiginlegum hagsmunum og markmiði í baráttunni gegn heims-
valdastefnu, en fyrir sigri sósíalisma og kommúnisma, svo og
hugmyndastefnu marxismans, sem er þeim öllum sameiginleg.
Samstaða og eining sósíalistísku landanna tryggir sjálfstæði
þeirra og fullveldi hvers um sig. Efling hróðurlegra samskipta og
vináttu sósíalistísku landanna í millum kallar á sameiginlega
stefnu kommúnistaflokka og verklýðsflokka í alþjóðlegum anda
marxismans, viðleitni þeirra að þroska allan verkalýð í anda
alþjóðastefnu, sem tengd sé sannri þjóðrækni, og að sigrast á öll-
um leifum borgaralegrar þjóðrembingsstefnu. Öll ágreiningsefni,
er upp kynnu að koma milli sósíalistísku landanna, er unnt að
leysa að fullu með viðræðum í féiagslegum anda, þar sem meg-
inreglur sósíalistiskrar alþjóðahyggju séu hafðar stranglega í
heiðri.
m.
Þorri verklýðsstéttar og vinnandi fólks í öllum löndum lítur
með djúpri samúð til sigurs sósíalismans i Ráðstjórnarríkjunum
og árangursríkrar sósíalistískrar þróunar í alþýðulýðveldunum.
Hugsjónir sósíalismans vinna sér milljónir nýrra fylgjenda. Þetta
veldur því, að hin heimsvaldasinnaða borgarastétt leggur æ meira
kapp á að móta hugarfar fjöldans sér í hag. Hún falsar sósíalism-