Réttur - 01.01.1958, Blaðsíða 8
8
R É T T U R
hvítu móður", — og fram til þessa dags. Þeir hafa einnig gefið oss
slík meistaraverk marxistiskrar skilgreiningar, er margir Iærðir
marxistar utanlands inættu margt af nema, svo sem t. d. Halldór
Kiljan gerir með hinni djúpsæju, stórsnjöllu rannsókn á þjóðfélags-
legum bakgrunni Hallgríms Péturssonar og Passíusálmunum í
„Inngangi að Passíusálmum" í „Vettvangi dagsins". Eða getur öllu
snjallari skáldlega mynd af uppruna ríkisvaldsins, eins og marx-
isminn kennir hann, en í „Gerplu" Halldórs? Eða er þessi mynd
máske hin eina, sem heimsbókmennirnar eiga í skáldsöguformi,
af þessu fyrirbrigði: myndun ríkisvaldsins, sem einmitt marxistum
er svo mikil þörf á að rifja upp, þegar sagan brátt fer að kalla þá
til þess verks að sjá um að ríkisvaldið, síðasta kúgunarvald mann-
kynssögunnar deyi út. Og eins og þessi bezm skáld íslenzkrar al-
þýðu og önnur skapa listaverk sín sjálfstætt, hugsuð og lifuð út frá
eigin reynslu og þekkingu, án allra forskrifta, en í samræmi við
sína sannfæringu um sósíalismann, eins og þeir skilja hann, —
svo hafa og marxistiskir menntamenn vorir, þótt lærðir séu í
fræðum marxismans, ætíð kappkostað að vinna sjálfstætt í anda
hans vísindaleg verk sín: heimspeki Brynjólfs, bókmenntarit Krist-
ins, sagnaritun Sverris, Björns og Gunnars.
Þannig mætti lengi halda áfram að telja, hvernig marxisminn
hefur auðgað íslenzkan anda og list.
Því er íslenzkri alþýðu hollt að minnast Karls Marx nú og muna
hvernig kenning hans, marxisminn, hefur máttkvað og stækkað
hana sjálfa og á enn eftir að leiða hana fram til endanlegs sigurs
yfir örbirgð og fátækt, auðvaldi og hverskonar kúgun, — fram
til þess bræðralags frjálsra manna, þar sem hernaðarhættum og
ógnum styrjalda endanlega er útrýmt og allsnægtir vorrar auðugu
jarðar verða sameign allra mannanna barna.
[í „Rétti“ hafa birzt þessar ritgerðir eftir Marz og um hann:
Marx: Athugasemdir við Gothastefnuskrána XIII. árg. 1928.
Lenin: Marxisminn XV. árg. 1930.
Lenín: Karl Marx XV. árg. 1930.
Marx: Launavinna og auðmagn XVI. árg. 1931.
Franz Mehring: Marx og Engels. XXVIII. árg. 1943 .
Karl Marx, æviágrip. XXXVII. árg. 1953.
Engels: Ræða haldin við gröf Marx í Highgate 17. marz 1883.
XXXVII. árg. 1953].