Réttur - 01.01.1958, Blaðsíða 131
RÉTTU*
131
allra þeirra, er unna föðurlandi sínu,
allra, sem afstýra vilja styrjöld,
allra góðviljaðra manna:
Krefjizt þess, að endir sé bundinn á vígbúnaðarkeppnina, sem
hefur í för með sér síaukna stríðshættu og er þess eðlis, að þér,
alþýða manna, verðið að bera byrðar hennar.
Krefjizt banns við kjarnorkuvopna- og veínisvopnahernaði og
við framleiðslu slíkra vopna, og heimtið, að hið fyrsta skref í þessa
átt sé stigið með hví að banna þegar í stað allar tilraunir með
þessi vopn.
Krefjizt afnáms hernaðarbandalagsstefnunnar og þeirrar stefnu
að reyna að tryggja sér herstöðvar á annarra þjóða landi.
Krefjizt þess, að þýzkum hernaðarsinnum, sem bera meginsök á
síðustu styrjöld, verði ekki leyft að endurvígbúast í miðstöðvum
Evrópu.
Styðjið stefnu sameiginlegs öryggis, friðsamlegrar sambúðar
mismunandi þjóðskipulagskerfa og víðtækrar samvinnu allra
þjóða á sviði efnahagsmála og menningar.
Vér skorum á yður öll:
Krefjizt þess af stjórnarvöldum yðar, að þau framfylgi stefnu
friðar innan samtaka Sameinuðu þjóðanna, stefnu andstöðu við
hið kalda stríð.
Vér heitum á alla þá, sem eru góðs vilja, hvar sem er í heim-
inum:
Leggizt á eitt um að koma til leiðar:
1. Tafarlausri stöðvun tilrauna með kjarnorku- og vetnisvopn.
2. Skilyrðislausu banni við smíði slíkra vopna og notkun þeirra til
hernaðar.
Vér kommúnistar höfum helgað lif vort málstað sósíalismans.
Vér erum þess fullvissir, að sá göfugi málstaður mundi reynast
sigursæll. Og einmitt vegna þess, að vér trúum á sigur hugsjóna
vorra, hugsjóna Marx og Leníns og alþjóðahyggju verkalýðsins,
— einmitt þess vegna æskjum vér friðar og beitum oss fyrir friði.
Stríð er oss viðurstyggS.
Hefjum héðan í frá samkeppni mismunandi þjóðfélagskerfa í
eflingu vísinda og tæknifræða til friðsamlegra hluta. Látum
þessi þjóðskipulagskerfi hvort um sig færa sönnur á yfirburði
sína í keppni um framfarir og bætt lífskjör þegnanna, en ekki
á vettvangi styrjaldar.
Vér viljum rétta hönd vora öllum góðviljuðum mönnum. Sam-
einumst um að knýja fram afnám vígbúnaðarbyrðanna, sem þjóð-
iraar stynja nú undir. Léttum af heiminum hættu styrjaldar,