Réttur - 01.01.1958, Blaðsíða 103
RÉTTDR
103
skamms. Hér var um að ræða andstæður sem ekki reyndist unnt
að sætta.
í öllum þessum átökum mótast hinn kommúniska hreyfing.
Félag ungra kommúnista var að vísu alltaf fámennt, en þar var
þó fyrst skipulagður sá hópur, sem átti eftir að verða kjarni mik-
illar hreyfingar. Félagið gaf út blað um skeið sem kom út mánað-
arlega og nefndist Rauði fáninn. Það var fyrsta kommúnistablaðið
á Islandi. Deilurnar í Jafnaðarmannafélaginu leiddu til þess að
það Iognaðist út af, en í stað þess var stofnað annað jafnaðar-
mannafélag árið 1926, Jafnaðarmannafélagið Sparta. Það var frá
upphafi á kommúniskum grundvelli. í fyrsm grein félagslaganna
er tekið fram að félagið starfi á grundvelli marxismans eins og
hann hafi verið lagður af Marx, Engels og Lenín. Jafnframt
vilji félagið vinna að framgangi kommúnismans og leitast við að
efla stéttarvitund framsæknasta hluta verkalýðsins og gera hann
hæfan til að mynda byltingarsinnaðan flokk. Takmark félagsins
var þannig frá upphafi stofnun kommúnistaflokks.
Félagið var að vísu fámennt, en átti þó meiri þátt í forsögu
kommúnistaflokksins en nokkur annar félagsskapur. Það kom
sér upp allgóðu marxisku bókasafni, á vegum þess voru flutt
fræðileg erindi um sósíalismann og það leitaðist við að koma á
samvinnu við kommúnista annarsstaðar á landinu og samræma
stefnu þeirra. Um sama leyti og Sparta var stofnuð komu komm-
únistar sér upp tímariti, Rétti, sem út hefur komið allt til þessa
dags. Ritstjóri hans var Einar Olgeirsson, sem þá var búsettur á
Norðurlandi. Þetta tímarit var hinn fræðilegi tengiliður kommún-
istahreyfingarinnar um nokkur ár.
A meðan þessu fer fram reyna hægri foringjar að breyta Al-
þýðusambandinu í sósíaldemókratískan flokk og þar með hefst
klofningsstarfsemin í sjálfum verkalýðssamtökunum. Sparta sótti
um upptöku í Alþýðusambandið, en var hafnað. Jafnframt var
gerð sú lagabreyting að aðeins eitt stjórnmálafélag á hverjum
stað geti verið í Alþýðusambandinu, kommúnistar skyldu þannig
útilokaðir frá samtökunum.
En samtímis gerast stór tíðindi í verkalýðshreyfingunni utan
Reykjavíkur einkum á Norðurlandi. Allt til þessara ára hafði