Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 116
Karl Skírnisson:
Fæðuval minks í Grindavík
INNGANGUR
Grein þessi fjallar um athugun á
fæðuvali minks (Mustela vison Schreber)
við sjávarsíðuna í Grindavík 1978—
1979. Athuganir þessar eru hluti af
rannsóknarverkefni sem höf. vinnur að
við liffræðiskor Háskóla íslands. Mark-
mið rannsóknanna er að afla staðgóðrar
vitneskju um fæðu og lifnaðarhætti
minks hérlendis. Hliðstæðar rannsóknir
hafa farið fram erlendis (Gerell 1968) en
fæðuval minks á íslandi hefur ekki áður
verið kannað.
Lítið hefur verið skráð um mink á
Islandi, en hingað kom hann fyrst árið
1930 er hafið var að rækta mink á búum
vegna skinnanna er voru í háu verði.
Minkurinn er upprunninn í Norður-
Ameríku og lifir þar villtur allt norðan
frá Labrador og N.-Alaska suður til
Florida, Texas og Kaliforníu (Banfield
1974). I N.-Evrópu eru amerískir mink-
ar víða (Corbert & Southern 1977) og
eru þeir komnir af minkum er sloppið
hafa úr búum. 1 Evrópu og Asíu eru auk
þess heimkynni náskyldrar tegundar,
Mustela lutreola (L.). Á Islandi sluppu
minkar fljótlega úr haldi og fundust
minkagreni fyrst 1937, við Elliðaárnar í
Reykjavík. Á næstu árum jókst villti
Náttúrufræðingurinn, 49 (2—3), 1979 194
stofninn smám saman. Byrjað var að
greiða veiðilaun fyrir unna minka 1939,
en þá var greitt fyrir 5 minka, 1945 var
greitt fyrir 122 minka, 1948 var greitt
fyrir 1200, (Hólmjárn J. Hólmjárn
1948) og 1977 var greitt fyrir 4144
minka. (Munnlegar upplýsingar frá
Sveini Einarssyni, veiðistjóra). Fyrstu
búin voru á Suðvesturlandi og breiddist
minkurinn þaðan norður og austur um
land. Minkarækt var bönnuð með lög-
um 1952, en lögin voru afnumin 1969
þegar minkur var orðinn útbreiddur um
mest allt landið.
Ég vil þakka öllum þeim er aðstoðuðu
mig á einn eða annan hátt við söfnun og
úrvinnslu þeirra gagna er greinin er
byggð á. Umsjónarmanni þessa verk-
efnis dr. Arnþóri Garðarssyni prófessor
vil ég færa sérstakar þakkir, en hann las
handrit og lagfærði margt sem betur
mátti fara.
AÐFERÐIR
Athuganir á fæðuvali minka í
Grindavík fóru fram á tímabilinu 1.1.
1978—20.2. 1979. Þær byggðust á því
að safna minkasaur og ákvarða dýra-
leifar í honum. Saurgreiningar eru
hentugar við athuganir á fæðuvali rán-