Andvari - 01.01.1994, Blaðsíða 16
14
DAVÍÐ ODDSSON
ANDVARI
Björnsdóttir áttu auk Hallgríms fimm börn, sem komust öll á legg.
Yngsta systir Hallgríms, Ingibjörg Elísabet, giftist Ólafi Kvaran sím-
stjóra, en dóttir þeirra er Elísabet María Kvaran, sem gift er Þorvaldi
Garðari Kristjánssyni, fyrrverandi forseta Alþingis.
Hallgrímur Benediktsson ólst upp hjá frænda sínum, hinum kunna
klerki, séra Birni Þorlákssyni á Dvergasteini, fram til tvítugs, en fór
þá til Reykjavíkur í því skyni að afla sér menntunar. En sakir fátækt-
ar gat hann aðeins stundað verslunarnám þar í einn vetur, 1905-1906.
Eftir það starfaði Hallgrímur um skeið á pósthúsinu í Reykjavík, en
vann við verslun til 1911, er hann stofnaði eigið fyrirtæki, umboðs- og
heildverslun, aðeins 26 ára að aldri. Rak hann heildverslun sína einn
í áratug, síðan í nítján ár með Hallgrími A. Tulinius og eftir það aftur
einn til æviloka. Var Hallgrímur einn merkisbera hinna dugmiklu,
innlendu kaupmanna, sem tóku verslunina úr erlendum höndum
fyrstu áratugi tuttugustu aldar. Fyrirtæki hans, H. Benediktsson &
Co., dafnaði jafnan vel, og átti Hallgrímur hlut í og sat í stjórnum
ýmissa annarra fyrirtækja, til dæmis Eimskipafélags íslands, Sjóvá-
tryggingafélags íslands og Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins.
Ennfremur átti Hallgrímur sælgætisverksmiðjuna Nóa-Siríus og inn-
flutningsfyrirtækið Ræsi hf. En fleira lá vel fyrir Hallgrími Bene-
diktssyni en verslun. Hann var í æsku kunnur íþróttamaður. Varð
hann glímukóngur íslands á Þingvöllum árið 1907, og árið 1912 vann
hann verðlaun fyrir glímu á Ólympíuleikunum í Stokkhólmi. Hall-
grímur hafði líka lifandi áhuga á félagsmálum og stjórnmálum og
naut þar vinsælda og trausts. Hann var einn þeirra sem gengust fyrir
því með undirskriftasöfnun árið 1921 að fá Jón Þorláksson verkfræð-
ing í framboð til Alþingis, og árið 1926 settist Hallgrímur sjálfur í
bæjarstjórn Reykjavíkur. Sat hann í bæjarstjórn 1926-1930 og 1946-
54. Hallgrímur var eindreginn fylgismaður Sjálfstæðisflokksins og
sjálfstæðisstefnunnar og andstæðingur haftastefnunnar, sem fylgt var
hér á kreppuárunum. Var hann í hópi þeirra kaupsýslumanna, sem
gengust fyrir stofnun Verslunarráðs Islands. Hann var lengi formað-
ur Verslunarráðsins, og taldi hann höfuðverkefni þess að berjast fyrir
verslunarfrelsi. Hallgrímur var kjörinn varaþingmaður fyrir Reykja-
vík árið 1942 og tók sæti á Alþingi árið 1945, er Jakob Möller gerðist
sendiherra; sat hann á þingi til 1949. Hann lést 26. febrúar 1954. „Það
eru menn eins og Hallgrímur Benediktsson, sem af eigin rammleik
öðlast mannaforráð, auð og völd, en varðveita þó þjónustulund sína