Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1994, Blaðsíða 23

Andvari - 01.01.1994, Blaðsíða 23
andvari GEIR HALLGRÍMSSON 21 inn um séreignaskipulagið sem hið virkasta og áhrifaríkasta hagkerfi, sem þekkzt hefur. Til þess að fullnægja hagnaðarhvöt sinni verður atvinnurekandinn að inna af hendi eitthvert það starf, sem er þýðing- armikið frá sjónarmiði annarra og fullnægir þeirra þörfum. Ágóði hans er undir því tvennu kominn, hversu ódýrt honum tekst að fram- leiða vöru sína og hversu vel honum tekst að selja hana. Tannig verða það óskir og þarfir neytendanna eins og þær koma fram í kaupum þeirra á markaðnum, sem ráða úrslitum um það, hvað fram- leitt skuli. Um leið og einstaklingurinn sinnir þannig hagnaðarvon- inni, sem er í eðli sínu eigingjörn hvöt, innir hann af hendi þjóðhags- lega mikilvægt starf.“ Hér er greinilega sleginn sami tónn og í grein- um hins 19 ára „Grímnis“ í Morgunblaðinu sumarið 1945. III Geir Hallgrímsson gekk að eiga Ernu Finnsdóttur, bekkjarsystur sína úr Menntaskólanum í Reykjavík, í kapellu Háskóla íslands 6. júlí 1948, skömmu eftir að hann lauk lagaprófi. Þau höfðu vitaskuld þekkst í menntaskólanum, en kynnst betur eftir stúdentsprófið. Erna er dóttir Finns Sigmundssonar landsbókavarðar og konu hans, Krist- ínar Aðalbjargar Magnúsdóttur, sem bæði voru af eyfirskum ættum. Finnur fæddist árið 1894 og lést 1982, en Kristín fæddist árið 1898 og lést sama ár og maður hennar. Að loknu stúdentsprófi hóf Erna störf í Landsbókasafninu, en haustið 1948 héldu þau Geir vestur á bóginn. í*á hóf Geir framhaldsnám í lögfræði og hagfræði við Harvard-há- skóla í Bandaríkjunum, en Erna sótti tíma í píanóleik. Harvard- háskóli var þá sem nú einhver virtasti háskóli í Bandaríkjunum. Geir hafði mikinn áhuga á hagfræði og stóð hugur hans til að sökkva sér í þau fræði eftir laganámið, en þá veiktist faðir hans, Hallgrímur Benediktsson, svo að þau Erna ákváðu að snúa heim vorið 1949. Bjuggu þau í íbúð að Mávahlíð 34 til 1952, er þau fluttust í myndar- legt einbýlishús að Dyngjuvegi 6, þar sem þau áttu heima alla tíð síð- an. Fyrstu árin eftir heimkomuna starfaði Geir við fyrirtæki föður síns, en strax og hann hafði öðlast réttindi héraðsdómslögmanns 24. ágúst 1951, setti hann upp eigin lögfræðiskrifstofu. Jafnframt var hann viðskiptalegur framkvæmdastjóri Sameinaðra verktaka árin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.