Andvari - 01.01.1994, Blaðsíða 27
ANDVARI
GEIR HALLGRÍMSSON
25
manna um flokkstryggð á þeim tíma. Geir Hallgrímsson var hins
vegar í hópi þeirra, sem studdu séra Bjarna kappsamlega. Kom þar
tvennt til. Annars vegar ákvörðun Sjálfstæðisflokksins og forystu-
manna hans, en hitt hefur ekki dregið úr, að Geir var náfrændi Ás-
laugar Ágústsdóttur, konu séra Bjarna. Heimdallur studdi líka for-
setaframboð séra Bjarna með ráðum og dáð. Urslit urðu þau, að Ás-
geir hlaut 46,7% atkvæða en séra Bjarni 44,1%. Þriðji frambjóð-
andinn, Gísli Sveinsson, þá sendiherra, hlaut 6,5% atkvæða. Munaði
tæpum tvö þúsund atkvæðum á þeim Ásgeiri og séra Bjarna.
Bjarni Benediktsson segir í æviágripi Ólafs Thors, sem birtist í
Andvara 1966, að Ólafur hafi tekið úrslitin nærri sér: „Sárnaði Ólafi,
að verulegur hluti sjálfstæðismanna hafði bersýnilega kosið annan en
þann, sem Ólafur og flestir aðrir forystumenn flokksins höfðu beitt
sér fyrir.“ Varð þetta í síðasta sinn sem stjórnmálaflokkarnir reyndu
að tryggja „sínum manni“ forsetakjör. Formönnum Sjálfstæðisflokks
nútímans myndi þykja kraftaverk, ef þeir gætu haldið svo vel utan
um sitt fólk og tókst 1952, þótt Ólafi Thors sárnaði þá. Svo hafa tök
flokkanna veikst, sem betur fer.
Geir Hallgrímsson var formaður Heimdallar í tvö ár, fram að aðal-
fundi 7. mars 1954. Fyrra starfsárið voru flestir stjórnarmenn vinir
hans og trúnaðarmenn, og var Eyjólfur Konráð Jónsson þá varafor-
maður. Síðara starfsárið voru stuðningsmenn Geirs hins vegar flestir
felldir í stjórnarkjöri á aðalfundi, þótt hann væri sjálfur endurkjörinn
sem formaður, og sögðu þá gárungarnir, að Geir sæti eins og upp-
stoppaður hrafn í kríuhópi! Vafalaust mátti að einhverju leyti rekja
átökin í Heimdalli til forsetakjörsins, en hinir nýju stjórnarmenn
voru sumir handgengnir Gunnari Thoroddsen, til dæmis Valgarð
Briem og Pétur Sæmundsen.
Það segir sína sögu um stöðu Geirs að ekki var talið vogandi að
beina atlögunni beint að honum, þótt vissulega væri nærri höggvið.
Meðal þess sem gert var á vegum Heimdallar í formannstíð Geirs má
nefna, að þeir Geir og Eyjólfur Konráð Jónsson söfnuðu saman fjöl-
mörgum tilvitnunum í rit íslenskra kommúnista, og komu þær út í
sérstökum ritlingi á vegum Heimdallar árið 1953, Peirra eigin orð.
Hafa margir forystumenn Heimdallar fylgt því fordæmi með drjúg-
um árangri síðar. Enn fremur gaf Heimdallur út bækling eftir Ölaf
Björnsson prófessor gegn haftastefnunni fyrir alþingiskosningarnar
1953. í formannstíð Geirs Hallgrímssonar var félagslíf blómlegt í