Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1994, Side 157

Andvari - 01.01.1994, Side 157
ANDVARl UNG SKÁLD í ALDARBYRJUN 155 sonar). Jóhann átti ekki afturkvæmt til fslands og dró fram lífið á ritstörf- um, þýddi m.a. rit eftir Gunnar Gunnarsson á þýsku. Hann lést í Leipzig haustið 1932, 36 ára gamall. Þá hafði hann fyrir fáum árum birt sitt frægasta ljóð í tímaritinu Vöku, - Söknuður - Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað? Þetta var andlátsljóð og brátt lögðu berklarnir skáldið að velli. A æskuárum Jóhanns er nýrómantíkin að ryðja sér til rúms á íslandi, og hann kveður í hennar anda, raunar eru flest ljóð Jóhanns skilgetið afkvæmi hennar. Á menntaskólaárunum í Reykjavík 1918 skrifar hann að nýtt skáld sé komið fram á sjónarsviðið: „Hann heitir Stefán Sigurðsson. Maður merkilega líkur mér að útliti og haltur í tilbót. (Berklarnir höfðu gert Jó- hann haltan). Hann gefur út ljóðabók í haust. . . Maðurinn er fluggáfaður og lyriker af allra besta tagi. Enda þroskaður maður.“ Jóhann tilfærir kvæðið Skuggabjörg og segir: „Skáld af fyrsta klassa eins og þú sér á þessu!“ (93-94). Ekki kemur á óvart að Jóhann finnur til mikillar sam- kenndar með Stefáni frá Hvítadal, enda er hann af sama skáldaskóla. Eins og gengur í einkabréfum er vikið hér að mönnum og málefnum sem ætla má að nútímalesendur átti sig ekki á og er því þörf á skýringum. En skýringar í þessari útgáfu eru af skornum skammti, aðallega þýðingar á út- lendum slettum. Þá eru sögð deili á örfáum mönnum, en um flesta stendur ekki neitt. Svo bregður þó við að útgefandi telur ástæðu til að segja lesend- um deili á Stefáni frá Hvítadal og Knut Hamsun öðrum fremur! Ekki veit ég hvaða þekkingarstigi er gert ráð fyrir hjá lesendum ef þarf að upplýsa þá um annað eins og þetta. Þáttaskil verða á ferli Jóhanns 1921 þegar hann fer til Þýskalands. Og nú gerist það sem vænta má þegar íslenskum pilti er varpað út í hinn stóra heim: Hann verður ráðvilltur. Hann kynnist nú menningarheimi Mið-Evr- ópu og finnst eðlilega íslensk menning og bókmenntir hin mesta sveita- mennska. Við erum ekkert annað en epigónar, eftirhermur, segir hann. Sjálfur kemst hann ekkert áleiðis í skáldskapnum. Nám hans verður ómarkvisst, hann á vart málungi matar, kona hans yfirgefur hann, heilsan brestur og heima hefur hann að engu að hverfa. Frá Bad Grund í Harz-fjöllum ritar Jóhann vini sínum lengsta bréfið 1923, tekur það rúmar 30 síður í bókinni. Þar lýsir hann vel mörgu sem fyrir augu hefur borið, m.a. Weimar, borg Goethes. Hin gróna borgaralega menning verkar sterkt - og lamandi á hið íslenska skáld. Hann segir: „Eg hef lært afar margt hérna í Þýskalandi. Einkanlega hefur kúnstnarinn í mér fengið margar alvarlegar lexíur. - Já, það er mörg eldraunin sem við íslend- ingar megum gegnum ganga meðan við erum að samlagast stórmenning- unni hérna úti. Yfirleitt er það að mörgu leyti sorglegt að vera íslendingur. Það er í raun og veru sama og að vera utanveltu besefi meðal þjóðanna, engri þjóð tilheyrandi, því að eins og sakir standa nú eru íslendingar engin
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.