Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1994, Page 34

Andvari - 01.01.1994, Page 34
32 DAVÍÐ ODDSSON ANDVARI VIII Geir Hallgrímsson og samherjar hans höfðu ekki lengi fagnað varn- arsigri sínum í Reykjavík, er þeim bárust sem öðrum íslendingum einhver mestu og válegustu tíðindi, sem orðið hafa í sögu Sjálfstæðis- flokksins sem og sögu þjóðarinnar. Hinn 10. júlí 1970 lét formaður flokksins, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, lífið í eldsvoða í for- sætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum ásamt konu sinni, Sigríði Björnsdóttur, og ungum dóttursyni. Þessi fregn kom sem reiðarslag yfir alla forystumenn Sjálfstæðisflokksins og raunar alla íslendinga. Jóhann Hafstein, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og dóms- og iðn- aðarráðherra, tók til bráðabirgða við stöðu forsætisráðherra. Hald- inn var þingflokksfundur, þar sem ákveðið var að tillögu séra Gunn- ars Gíslasonar í Glaumbæ að fela fjórum mönnum eins konar leið- sögn flokksins eftir hið skyndilega fráfall flokksforingjans. Þeir voru hinir þrír ráðherrar flokksins, Jóhann Hafstein, Ingólfur Jónsson og Magnús Jónsson frá Mel, og Geir Hallgrímsson borgarstjóri. Sýnir þetta, að Geir var árið 1970 í raun orðinn einn aðalleiðtogi Sjálfstæð- isflokksins. Hafði Bjarni Benediktsson raunar lengi haft augastað á honum sem eftirmanni sínum. Árið 1965, er Gunnar Thoroddsen sagði af sér varaformannsstöðu í Sjálfstæðisflokknum og ráðherra- starfi til þess að verða sendiherra í Kaupmannahöfn og búa sig undir forsetaframboð 1968, hafði Bjarni viljað, að Geir yrði varaformaður. Hafði hann rætt það við þá Geir og Jóhann Hafstein, sem ella hefði verið talinn standa næst því. Þegar Bjarni kynnti þingmönnum þetta sjónarmið, kom hins vegar í ljós nokkur andstaða. Töldu ýmsir þing- menn rangt að leita út fyrir þingflokkinn um varaformannsstöðuna. Enn fremur voru sumir gamlir vinir Jóhanns í þingflokknum, til dæmis Jón Árnason, Jónas G. Rafnar og Sigurður Ágústsson, þeirrar skoðunar, að gengið væri freklega fram hjá honum, ef Geir Hall- grímsson yrði varaformaður. Tími Geirs væri ekki kominn. Þegar Bjarni varð var við þessa andstöðu og gerði sér ljóst, að Jóhann gæti hugsað sér að verða varaformaður, ákvað hann að styðja Jóhann í stöðuna, og var hann kjörinn varaformaður á landsfundi 1965. En nú jukust viðsjár í Sjálfstæðisflokknum. Hinn vinsæli og áhrifa- mikli fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík og varaformaður flokks- ins, Gunnar Thoroddsen, hafði tapað fyrir Kristjáni Eldjárn í for- setakjöri 1968 og þar vafalaust goldið erfiðleika þeirra, sem viðreisn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.