Andvari - 01.01.1995, Page 96
94
JÓNAS HALLGRÍMSSON
ANDVARI
Megintilgangur ferðar Jónasar um Þingeyjarsýslu sumarið 1839 var að kanna þar
brennisteinsvinnslu fyrir Danakonung. Hann samdi stuttar greinargerðir um
vinnsluna og sendi utan, en síðar, eftir að hann var aftur snúinn til Danmerkur, rit-
aði hann um veturinn 1843-44 á dönsku alllanga skýrslu handa stjórnvöldum um
brennisteinsnáma á Islandi: „De islandske Svovlleier“. Jónas dvaldist í þann tíma í
Sórey á Sjálandi á heimili vinar síns, náttúrufræðingsins Japetusar Steenstrups.
Steenstrup, sem var á íslandi 1839-40 og ferðaðist um með Jónasi, samdi skýrsluna
að litlum hluta. Skýrslan er nú varðveitt á Þjóðminjasafni íslands (Þjms. 12163) og
var hún frumprentuð, á dönsku, í Ritum eftir Jónas Hallgrímsson, IV. bindi,
Reykjavík 1934.
Á ferðum sínum á íslandi skrifaði Jónas á dönsku vísindalegar dagbækur þar
sem hann gerir grein fyrir rannsóknum sínum. Dagbækurnar birtust í íslenskri
þýðingu minni í Ritverkum Jónasar Hallgrímssonar, II. bindi, Reykjavík 1989.
Dagbókin frá 1839 er endaslepp eins og hún liggur nú fyrir, öftustu síður hennar
hafa glatast. En brennisteinsskýrslan bætir þar að nokkru úr, því að í henni fjallar
Jónas meðal annars um rannsóknir norðanlands þetta sumar sem vantar í dagbók-
ina.
Hér á eftir fara tveir kaflar eftir Jónas úr þessari brennisteinsskýrslu í íslenskri
þýðingu. Kaflarnir, sem nú voru valdir til þýðingar, tengjast beint erindunum um
Víti og Fremrináma. Á undan þeim köflum er greinargóð lýsing á Reykjahlíðar-
námum sem Jónas vísar til í Kröfluþættinum. Það er von mín að unnendum Jónas-
ar þyki fróðlegt að sjá hve ólíkum tökum hann tekur efnið eftir því hvort skáldið
eða náttúrufræðingurinn heldur á penna. Þessir kaflar ásamt vísunum sýna einnig
gjörla hvernig hinir ólíku þættir vísinda og skáldskapar tvinnast saman hjá Jónasi
Hallgrímssyni.
Til skýringar skal nefnt að eldgíginn Víti í kvæðinu kallar Jónas fullu nafni Hel-
víti í brennisteinsskýrslunni. Fyrirtækið 0rum & Wulff starfrækti brennisteins-
vinnslu á Húsavík og hafði brennisteinsnámana í Þingeyjarsýslu á leigu; með Úlfi
karli, sem nefndur er í Fremrináma-erindinu, vísar Jónas til þess fyrirtækis. Loks
skal nefnt, að Jónas stóð fyrir jarðborunum bæði í Reykjahlíðar- og Fremrinámum;
þær stóðu í fjóra daga samfleytt og hafði hann sér til aðstoðar allan þann mann-
skap sem hann þurfti.
H.H.
X