Andvari - 01.01.1995, Síða 120
118
JÓHANN SIGURJÓNSSON
ANDVARI
B. Bréf til Stefaníu Guðmundsdóttur.
Charlottenlund Johannevej 18.7. (?) 1915
Kæra frú Stefanía.
Ef myndirnar af þjer segja satt, sem þær eru neyddar til að gjöra, þá hef-
ur þú leikið Steinunni forkunnarvel, þær eru hreinasta gersemi og sendi jeg
þjer hjartans þökk fyrir hvorttveggja, leikinn og myndirnar. Jeg veit ekki
hver mjer þykir ágætust, þó er ef til vill myndin þegar Loptur er nýfarinn út
sú átakanlegasta. Jeg er eins og vant er seinn í snúningunum ekki síst til
brjefaskripta og er það ástæðan fyrir því að þú hefur ekki fengið þakklæti
fyrir löngu, en jeg veit að þú fyrirgefur. Jeg skrifa til Waage og bið hann um
myndina þar sem hann sver í öðrum þætti, jeg fjekk hana, þó ekki frá hon-
um beinlínis, í litlu formi, en lánaði hana sænskum blaðamanni til þess að
setja hana í sænskt myndablað, en hef ekkert heyrt frá honum síðan. Fái
jeg nýja mynd frá Waage, reyni jeg að fá tvær myndir af þjer og svo hana
tekna í Teatret, heppnist þetta skal jeg senda þjer eitt eða tvö eintök. Leitt
þykir mjer að Árni er farinn. Hann var ágætur leikhússtjóri í allan máta og
veit jeg ekki hver á að fylla það skarð. Leikhúsið var bænum yndi og öllu
landinu til sóma og væri aumt ef það starf leggðist niður eða lamaðist. Fyrir
þá íslendinga, sem fást við að skrifa leikrit var það hjartfólgnasta leiksviðið
af öllum.
Jeg er nú að berjast við nýtt efni, sem er tekið úr Njálssögu; ekki skalt þú
minnast á þetta nema þú heyrir það utan að þjer, sem vel má vera.
Ib biður kærlega að heilsa þjer, hún er í óða önn að klippa rósir til þess
þær eyðileggist ekki í rigningunni sem í þessari svipan er að dynja yfir.
Kær kveðja frá „Eyvindarkofa“
og þínum einlæga vin
Jóhanni Sigurjónssyni.
[Orðalagið: að Árni er farinn lýtur að því, að í lok leikárs lét Árni Eiríksson af for-
mennsku í Leikfélagi Reykjavíkur og hafði þá gegnt því starfi, sem réttilega jafngilti
leikhússtjórastarfi, í átta ár samtals, frá 1904, en 1910-13 var Jens Waage formaður.j