Andvari - 01.01.1995, Síða 132
130
ÁRMANN JAKOBSSON
ANDVARI
Kristi með milligöngu helgra manna.23 Pótt ástæðulaust sé að efa að rétt sé
farið með þá messudaga sem getið er í sögunni var þá talið að dýrlingar
væru nálægir á messudögum sínum og um það bil24 og þannig tengist Páll
helgum mönnum, einkum þeim sem eiga messudag er hann er vígður og
deyr. Prestsvígsla og byskupsvígsla Páls eru tengdar við Mattíasmessu,
páskadag, Jóns dag byskups og messu Filippusar og Jakobs (412-3). Dauði
Páls tengist Símonarmessu, allra heilagra messu, Marteinsmessu og Andr-
ésarmessu (432-3). Enginn þessara dýrlinga hefur augljós tengsl við Pál en
athygli vekur að margir þeirra eru postular. Þannig eru þeir félagar, Matt-
ías sem er tengdur prestvígslu Páls og Andrés sem tengist dauða hans.
Einnig tengist byskupsvígslan messudegi sem tveir postular eiga saman,
Filippus og Jakob. Að auki er Andrés bróðir Péturs og Jakob er Alfeusson,
oft ruglað saman við bróður Jóhannesar og bróður Krists með sama nafni.25
Það er freistandi að álykta að nærvera þessara bræðra, andlegra og líkam-
legra, á merkisdögum í lífi Páls sé ekki einber tilviljun í ljósi þeirra hug-
mynda um bræðralag heilagra sem eru greinilegar í sögunni.
Það er vart tilviljun að seinasta messa Páls skuli vera á allra heilagra
messu. Það tengir Pál við þá sem fyrir eru á himnum og gefið er í skyn að
hann muni senn bætast við þann hóp. Hinsta smurning Páls tengir hann
heilögum Marteini sem oft er nefndur faðir vestrænna játara26 enda er Páll
heilagur kirkjuhöfðingi og þannig eftirmaður Marteins. Dauðinn er merk-
asti viðburður í lífi heilags byskups þar sem hann er endurfæðing til and-
legs lífs. Þess vegna hafa tengsl Páls við Andrés postula eflaust þótt einna
merkust á sínum tíma. Andrés var bróðir Péturs og einn af fyrstu læri-
sveinum Krists, síðar krossfestur og er Andrésarkrossinn (X) tákn Skot-
lands þar sem hann var mjög dýrkaður. Andrés var sagður mildastur heil-
agra manna.27 Eins og síðar er getið er mildin og ástríkið aðall Páls bysk-
ups. Hann er því bróðir páfans í Róm í andlegum skilningi. Páfinn er
eftirmaður Péturs en Páll Andrésar. Að auki er Páll nafni postulans sem
ásamt Pétri er faðir kristni. Þannig tengjast byskupinn í Róm og byskupinn
í Skálholti í eftirlíkingu Krists.
Veraldleg fjölskylda Páls er áberandi í sögunni, meira en tíðkast í helgi-
sögum þar sem oft er lögð áhersla á afneitun veraldlegra fjölskyldu-
tengsla.2x Tryggð hans við hana leiðir til togstreitu þegar andlegur bróðir
Páls sendir honum bréf þar sem honum er sagt að styðja annan andlegan
bróður, Guðmund Arason, í deilum hins síðarnefnda við Kolbein Tumason
„en Kolbeins mál studdu margir ástvinir Páls byskups og frændur og
tengdamenn, þeir er hann vildi í öllu ástúð sýna“. Sagan hunsar þessa tog-
streitu að mestu, sakar Guðmund um óbilgirni, gefur í skyn í hefðbundnum
íslenskum dylgjustíl að Guðmundur bregðist byskupsskyldum sínum („af-
vinnur þótti varla með allmikilli stillingu“) en dregur fram stillingu Páls og