Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1995, Side 137

Andvari - 01.01.1995, Side 137
ANDVARI ÁSTVINUR GUÐS 135 fjárskaða „vel og prúðlega“ auk þess sem þolinmæði er talin til þeirra hátta sem hann líkir eftir Þorláki. Hann er meinlátur í föstum og klæðaburði (410, 419). Aldrei reynir þó jafnmikið á Pál og þegar hann missir konu sína og dóttur. Þá mátti hann „ei matar neyta og hann hafði öngvan svefn áður líkin voru niður sett en þó leitaði hann alla að gleðja í því er hann mátti.“ Páll tekur ekki aðeins missinum með stillingu heldur leitast við að hugga aðra, bæði heimilismenn sína og bróður Herdísar, og aðstoðar dóttur sína. I því fer hann að dæmi Krists sem sagði: „Og eg mun biðja föðurinn, og hann mun gefa yður annan huggara, til þess að hann sé hjá yður eilíf- lega.“56 Páll er huggari safnaðar síns en verður að bera eigin harm sjálfur (426). Helgum mönnum er mótlæti lykilatriði. Gregoríus mikli sagði játara vera píslarvotta friðartíma og sama viðhorf er víða í játarasögum.57 Raunir helgra manna styrkja þá og gera algjöra eins og segir í bréfi Jakobs: „Alítið það, bræður mínir, eintómt gleðiefni, er þér ratið í ýmiss konar raunir, með því að þér vitið að reynsla trúar yðar verkar þolgæði en þolgæðið á að birt- ast í fullkomnu verki, til þess að þér séuð fullkomnir og algjörðir og yður sé í engu ábótavant.“58 Páll byskup verður algjör í mótlætinu við missi konu sinnar og í eigin dauða, þegar „tók að óhægjast með verkjum miklum sótt hans og fylgdi bæði svefnleysi og matleysi og þótti hann þá einvænn vera.“ (433) Önnur dyggð Páls er lítillæti sem veldur því að hann neitar að taka byskupskosningu (411). Það er oft fremur talið náð en dyggð.59 Lítillæti var lykilþáttur í fari helgs manns því að allskyns falsdýrlingar gátu gert það sem virtist vera kraftaverk með aðstoð fjandans. Raunverulegir dýrlingar eru aftur á móti hógværir og miklast ekki af kraftaverkum. Þau má helst ekki ræða fyrr en eftir dauðann. Þannig er lítillætið nothæft til að greina sönn kraftaverk frá verkum fjandans.60 Alcuin bendir á að sá sem sé lítill fyrir eigin augum sé mikill fyrir augum Guðs.61 Fjöldi ritningargreina hníg- ur að því sama.62 Það vekur athygli að dyggðir Páls eru dæmigerðar fremur en persónuleg- ar, hann sameinar stjórnun og hugleiðingu og er fulltrúi beggja þátta heil- ags lífernis (vita activa og vita contemplativa) þó að meiri áhersla sé lögð á hið virka líf í lýsingu hans.63 Auk þeirra höfuðdyggða sem hér hafa verið nefndar eru ráðvendni, ölmusugæði, iðrun, fyrirgefning og syndajátning (419 og 433), hefðbundnar dyggðir sem Alcuin nefnir og vísa til ritningar- innar.64 Það sem helst sérkennir Pál er að gæfan virðist vera eiginleiki hans (413, 417, 422-3). Hún er talin gjöf Guðs í kristinni siðfræði.65 Ef til vill sést sú hugmynd í því orðalagi sögunnar að Páll hafi verið „svo mikill gæfumað- ur að honum gengu nálega allir hlutir að sólu hinn fyrra hlut ævi sinnar“ (422) en sólin er algengt tákn Krists.66 Einnig eru mikil rödd og söngur náðargáfur Páls. Þannig talar hann „langt mál og fagurt“ en fyrirmynd
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.