Andvari - 01.01.1995, Síða 139
ANDVARI
ÁSTVINUR GUÐS
137
usi sem taldi aldra mannsins (aetates hominis) samsvara heimsöldrunum
sex (aetates mundi).76 Líkingar undirstrika samsvörunina. Auður Páls vex
eins og sær gengi á land (410),77 byskupsdómur Páls er eins og skip (434)7S
og ráð hans skín (423), eins og sólin.
Náttúran birtir helgi Páls byskups þegar í lífi. Hann verður eins konar
milligöngumaður á jörðu milli Guðs og manna: „þá er mönnum þrengdi
óáran og bilaði mönnum sáð og sæfang og vel flestur vetrar viðbúnaður og
raskaðist af því forlag fénaðar fyrst en síðan manna, þá tók hann það ráð
með ásjá Þorvalds Gissurarsonar og annarra vitra manna í sinni sveit að
heita á Guð og helga menn til árbótar að syngja þrjár paternoster hvern
dag til dýrðar Guði í minning hins sæla Þorláks byskups . . . og kom aldrei
síðan hallæri meðan hann lifði.“(422-3) Þótt Þorlákur sé hér árnaðarmaður
þá leynir sér ekki að Páll er mikilvægur tengiliður. Góðærið helst meðan
hann lifir. Fyrirburðir sýna einnig tign Páls í lifanda lífi. Þorvald Gissurar-
son dreymir „að Jón Loftsson, faðir Páls byskups, fæli Petro postula á
hendur þá hjörð er hann hafði gætt. En Jesus Christus fól sína hjörð á
hendur Guði föður sínum, áður hann væri píndur. En Guðs miskunn fól nú
þessa sína hjörð á hendur Petro postula, áður vor faðir og gætandi var frá
oss kallaður.“ (434) Páll er eftirlíkjari Krists, sonarins, Jón Loftsson, faðir
hans, er tákn fyrir föðurinn en Pétur postuli tengir Pál og Krist. Auk þess
er hirðirinn algengt tákn fyrir Krist og Guð.79
En það er fyrst í dauða Páls að öll tvímæli eru tekin af um hver staða
hans sé. Áður verða landskjálfti, þerraleysi og lát höfðingja, Klængs Þor-
valdssonar, sem er fylgdarmaður Páls í dauðanum (432). í andláti Páls
verða stórtákn:
En viku fyrir andlát Páls byskups sýndist tungl svo sem róðra væri og gaf ekki ljós af
sér um miðnætti í heiðviðri og bauð þá þegar mikla ógn góðum mönnum . . . En hér
má sjá hversu margur stór kvíðbogi hefur farið fyrir fráfall þessa hins dýrðlega höfð-
ingja, Páls byskups. Jörðin skalf öll og pipraði af ótta, himinn og skýin grétu svo að
mikill hlutur spilltist jarðarávaxtarins. En himintunglin sýndu dauðateikn ber á sér þá
er nálega var komið að hinum efstum lífsstundum Páls byskups en sjórinn brann þá
og fyrir landinu, þar sem hans byskupsdómur stóð yfir. Sýndu nálega allar höf-
uðskepnur nokkur hryggðarmörk á sér frá hans fráfalli. (433-4)
Dauðateikn náttúrunnar vísa til dauða Páls. Menn sáu þá sem nú samsvör-
un milli mannsævi og dags og niðdimm nótt táknar dauða.811 Blóðlitur
tunglsins vísar og til Opinberunarbókar Jóhannesar: „Mikill landskjálfti
varð og sólin varð svört sem hærusekkur og allt tunglið varð sem blóð.“81
Atburðirnir sýna hryggð Guðs yfir dauða ástvinar síns og táknin sem urðu
eftir dauða Krists eru augljósar fyrirmyndir. Þeir binda því Pál við Krist. Þá
varð myrkur um allt land82 og landskjálfti svo að jörð skalf og björgin
klofnuðu.83 Þessi tákn eru tíð í biblíunni, til að mynda segir frá svipuðum