Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1929, Blaðsíða 105
IÐUNN
Nýr rithöfundur.
295
hann leggur hana frá sér með bljúgum huga að loknum
lestri í stað þess að fleygja henni út í horn.
II.
Bókin, Engar nýjungar frá vesturvígstöðvunum, kom
út á þýzku í janúar síðast liðinn vetur. í maí var hún
komin út í meira en 500 000 eintökum á þýzku, en hafði
auk þess verið þýdd á mörg önnur Evrópumál. Framan
á kápu sænsku útgáfunnar voru prentuð geysilofsamleg
ummæli eftir Albert Engström, og þýzkur ritdómari
komst svo að orði, að slík bók væri ekki skrifuð nema
einu sinni á öld.
I Kaupmannahöfn varð manni varla gengið fram hjá
svo ómerkilegri bókaverzlun síðara hluta vetrar, að þessi
bók væri þar ekki á bezta stað í glugga, þar sem mest
bar á henni; hún var stundum fest á sjálfa gluggarúð-
una. Áður en Danir höfðu ráðrúm til að þýða bókina á
dönsku og gefa hana út í 10 000 eintökum til bráða-
birgða, voru þeir búnir að selja nokkur þúsund þýzk eintök.
Höfundur þessarar bókar er frá Saxlandi. Hann heitir
réttu nafni Cramer, en hefir snúið nafninu við og sett
á það franska endingu (Remar)í7ue í staðinn fyrir C-ið,
hvort sem það á að minna menn á, að höfundur er
kominn af frönskum ættum.
Remarque var sjálfur í stríðinu, en eftir að ófriðnum
lauk, gerðist hann skólakennari í smáþorpi uppi á heið-
um, fekkst síðan við kaupsýslu o. fl., ferðaðist utan
lands og innan, en lenti að lokum í Berlín og gerðist
þar blaðamaður.
Bók Remarques er allstór, 288 blaðsíður í átta blaða
broti. Hún segir frá ævi nokkurra þýzkra hermanna í
stríðinu, en ungur hermaður er aðalsöguhetjan, og hann