Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1929, Blaðsíða 117
IÐUNN
Skuldamál Európu.
307
hafa neitað. Segja þeir að þýzka stjórnin hafi ekki sett
í umferð nema lítinn hluta af þessari upphæð; hitt eigi
rót sína í markbraski Belgíumanna sjálfra, eftir að vopna-
hlé var komið á, og vilja Þjóðverjar ekki bera ábyrgð
á því.
Gert er ráð fyrir, að samningar hefjist þegar milli
aðila um málið. En Belgir munu hafa trygt sér það, að
Young-samþyktin gangi ekki í gildi, fyr en fengin er
lausn á þessari sérstæðu skuldadeilu.
Ef til vill er ekki ástæða til að óftast, að þetta atriði
verði Voung-samþyktinni að fótakefli. Þó getur það orðið
til þess að tefja málið — ásamt öðru fleiru. En höfundar
samþyktarinnar hafa ætlað henni að ganga í gildi 1.
sept. í ár.
Eins og skilist hefir af framanrituðu, er Young-sámþyktin
enn sem komið er ekki annað en uppkast að endan-
legum samningi um skaðabæturnar, gert af fjármála-
fræðingum þeim, er nefndina skipuðu. Svo kemur til
kasta stjórnmálamannanna að fjalla um það og reka á
rembihnútinn. Eftir mikið þref um fundarstað kom svo
ráðstefna stjórnmálamanna saman í Haag 6. ágúst. Hefir
þar gengið í þófi miklu, sundurlyndi verið um skiftingu
skaðabótanna o. fl. Þykjast einkum Bretar mjög afskiftir.
Er enn alt í óvissu um úrslitin, þegar þetta er skrifað.
III.
Það hefir flogið fyrir, að MacDonald, forsætisráðherra
Breta, mundi innan skamms ætla að bregða sér vestur
um haf og hitta Hoover, forseta Bandaríkjanna, að máli
til þess að ræða afvopnunarmálin. Það hefir einnig kvis-
ast, að fjármálaráðherrann brezki, Philip Snowden, mundi
verða með í förinni, og að ætlunin væri að láta skulda-
•nál Bandamanna innbyrðis bera á góma á þeim fundi.
Hvernig horfir nú þeim málum við?
Eins og áður er drepið á, urðu ríkin á meginlandi
Evrópu — þau, er áttu í höggi við Þjóðverja, að kaupa
feiknin öll af hergögnum að Bretum og Bandaríkja-
^iönnum, meðan á stríðinu stóð. Þau skorti fé lil að