Andvari - 01.01.1908, Page 72
66
Om upphaf
laga og ekki búist við neinu góðu af konungsvald-
inu. Enn í dag ómar lil vor bergmálið af óhug al-
þiðu og heitri þrá eftir hinni fornu stjórnarskipun í
vísunni:
Þá var betra,
er fyrir baugum réð
Brandr inn örvi
ok burr skata.
Nú er fyrir löndum,
ok lengi mun,
Hákon konungr
ok hans synir.1
Sagt er, að þessa vísu — sem er tekin eftir Gizurar
sögu — hafi draumkona kveðið íirir Jóreiði nokk-
urri í Miðdal í Grímsnesi og sagst heita Guðrún
Gjúkadóttir. Enn vera má, aö hún sje ranglega eign-
uð draumkonunni og sje í raun rjettri ort af mensk-
um manni árið 1262 eftir þingið. Að minsta kosti
bendir efni hennar lielst til þess.
Jón Sigurðsson, og nú nílega höfundar Ríkis-
rjettinda, hafa haldið Jjví fram, að sáttmálinn frá
1262 haíi verið endurnijaður á aljnngi 1263 með
nokkrum viðaukum og breitingum, um leið og Odda-
verjar játuðu skattinum, og svarinn af bændum úr
öllum lijeröðum nema Austfirðingum, sem ekki hafi
verið á þingi, og á næsta aljnngi (1264) heldur Jón
Sigurðsson, að sáttmálinn haíi enn verið endurníjað-
ur, þegar Austfirðingar gengu undir skatt. Þetta
stiðst við fornt skjal, sem af mörgum hefur verið
kallað »Gam)i sáttmáli«. Það er lil í mörgum hand-
ritum, engu þó eldra enn um 1400. í ílestum hand-
ritum stendur sáttmáli Jiessi innan um önnur forn
skjöl og lagaboð, sem menn hafa skrifað upp sjer til
l) Sturl. Oxf. 11 221.