Andvari - 01.01.1908, Blaðsíða 103
Þegnskylduvinna.
97
það, hvað heppilegast er fyrir ungmennin, en live
íaikilli vinnu þeir afkasta.
Eg heíi stungið upp á því, að þegnskv. væri,
lyrir hvern raann, 7 vikur alls. En á það atriði legg
eg eigi mikla áherzlu. Bezl að láta reynzluna á-
kvarða það. Þó álit eg lieppilegast, að tíminn væri
eigi styttri en 8—10 vikur. Því hefir verið haldið
iram af sumum, að á 7 vikum lærðu menn ekkert
að gagni, en það er fjarstæða. Ef kenslan og kenslu-
áhöldin eru í ágætu lagi, getur sá, sem athugall er,
iært mikið lil verka á 4—(i vikum. Og þýðingar-
mikil breyting getur orðið á hugsunarhætti hans og
venjum. Meira að segja, hann getur lært eigi svo
iítið á því, að dvelja að eins einn dag á sönnu fyrir-
myndarheimili. Dæmi eru einnig til, að augnabliks
áhrif hafa gerhreytt liugsunarhælti og venjum manna.
Deila má um það, hvaða störf sé hagkvæmast
að framkvæma mcð þegnskylduvinnunni. Væri aðal-
áherzlan tögð á vegagerð og að bæta leiðir og lend-
ingar, mætti segja að gott jafnrétti næðist milli sjávar-
og sveita-pláza. Enn fremur myndi það einna auð-
veldast til framkvæmda, og í bráðina arðvænlegast,
einkum að því, er landssjóð snertir. Þó álít eg, að
mesta áherzlu eigi að leggja á að brjóta land og yrkja
fyrir fóðurjurtir, matjurtir, og skóga.
Það sem fyrst liggur fyrir, er að leggja fram fé
uf landssjóði lil að útvega og undirbúa menn til að
sljórna þegnskylduvinnunni, og til að koma byrjun-
inni í framkvæmd. I fyrstunni býst eg eigi við nema
■einum oða tveimur vinnuflokkum, enda er það nægi-
legt til að afla sér liinnar nauðsynlegustu reynzlu í
þessu efni, og lil að sjá, hver þjóðarviljinn er. Væri
vinnullokkurinn eigi nema einn í fyrstu, virðist eng-
mn vafa bundið að byrja skyldi á Vífilsstöðum, þar
sem áformað er að reisa berklaveikisliælið, er stofn-
að er lil með frjálsum samskotum. Með þengskylduv.
•Andvari XXXIII.
7