Iðunn - 01.06.1886, Side 49
Funclin Macleira.
343
fari, sonur Jóbanns þriðja, gert hann út ílandaleit
suður um Afríkuhaf. Fyrir tveim árum (1418) hafði
Sargó og fjelagi hans Tristan Vaz fundið éyna
Porto Santó, sem er nálægt 140 mílur í vestur frá
Afríku. f>angað hafði Hinrik sæfari sent nýlendu-
menn að heiman og fjenað. Moralés komst þegar í
kynni við Gonsalves Sargó.sagði honum frá landi því,
er Englendingar höfðu fundið og bauð sig til fylgdar
við hann, ef liann vildi fara þar vestur um hafið
og leita þess. Gonsalves þakkaði Moralés þessa
sögu; en með því honum þótti líkur til, að land
þetta mundi eigi vera langt vestur frá Afríku, þá
rjeð hann af að sigla til Porto Santo og hafa tal af
nýlendumönnum þar, áður en þeir hjeldu lengra
ve3tur í haf. Moralés rjeðst til ferðar með hon-
um.
|>egar þeir komu til Porto Santo, var þeim sagt,
að í heiðskíru veðri hefði opt sjezt þaðan blámi
nokkur í hafi, suður og vestur af eynni, eins og
skuggi væri, og næmi við himin út við sjóndeildar-
hring. Frá miðju þykkni þessu kváðust nýlendu-
menn opt hafa heyrt brimhljóð mikið og bresti
voðalega, og gátu þess til, að vera mundi þar hafs-
auga, en sjórinn belja þar niður til undirdjúpa með
tniklu forsfalli. En sú trú var þá almenn manna
á meðal, og það þó menntaðir væri, að úti í regin-
hafi væri einhversstaðar það hafsauga, er sjórinn
fjelli niður um, og væri engu skipi óhætt að koma
þar nærri, því öldurnar soguðu það með sjer ofan
í undirdjúpin, sem væru óbotnandi, og fyrir því
var það, að margir kynokuðu sjer við, að sigla