Iðunn - 01.06.1886, Blaðsíða 141
Borgin Pullman.
435
vörzlum sínum, enn vínsalan er bönnuð. Pullman
hefir sjálfr á hendi aðalforstöðu gestahallarinnar.
Við sama völl standa fegrstu stórhýsi borgarinn-
ar, bogagöngin »Arkaderne«, sem kölluð eru. jpað
er stór og reglulaus bygging, þar sem er miðpunktr
félagslífs og verzlunarlífs borgarinnar, og þar kemr
fram hin mesta fegrðartilfinning og auðr svo að full-
nægt er öllum kröfum. Hefir stofnun þessi kostað
alt að 1 miljón króna. Eftir byggingunni endi-
langri liggja 10 álna breið miðgöug, opin upp að
glerrjáfrinu, og gólfið í þeim lagt brendum leirfiög-
um; báðum megin við göngin eru 28 sölubúðir og
skrifstofur, og þar á meðal póststofa og málþráðar-
stöð. þetta er' með öðrum orðum »Bazar« bæjar-
ins, verzlunarsamkunda og kaupslcaparstræti, og
þar verða »urtakramarar«, vefnaðarsalar, járuvöru-
salar o. s. frv. að halda til, og eru nógu margir
af hverjum um sig til þess að nægileg samkeppni
verði. Með fram efra gólfi miðgangsin3 eru opnar
svalir, og er þaðan innangengt til liinna ýmsu stofn-
ana, sem hér eiga heima. Eyrst er bókasafnið, sem
Pullman hefir gefið stórkostlega bókagjöf, 10,000
bindi. Bókhlaðan ber ekki á sér svip fátæktar
eða andleysis. þar eru ekki kalkaðir veggir með
ómáluðum bókaskápum og útslitnum bókum eins
og í svo mörgum alþýðubókasöfnum. Sá maðr,
sem skapað hefir þenna verkmannabæ, hefir haft
hugann fastan á því, að íbúarnir hvarvetna og í
hvaða stöðu sem þeir eru, hafi fyrir augum eitt-
hvað sem er fagrt, smekklegt og laðandi, og því
hefir hann fengið framgengt. Bókasafnið er dýr-
28*