Iðunn - 01.06.1886, Side 144
438
C. St. A. Bille:
borgum í Ameríku. |>að er og venja, að bóndinn
eða húsfreyjan fara á torgið til kaupa.
Slökkliðsstöðvarnar standa í sambandi við fjölda
málþráða. Með því að vatnsþrýstingin er næg til
þess að steypa vatnsgusum yfir hæstu hús borgar-
innar, þarf engar gufuvélar til að hefja upp vatnið
og gjósa því yfir húsin, og er þar ekki annað fast
slökkvilið enn sex menn. f>egar merki er sýnt, að
eldr hafi kviknað í húsi, eru slökkliðshestarnir
óðara lausir og aktygin falla um bringu þeirra;
eru þeir komnir á stað áðr enn 15 sekúndur eru
liðnar.
Ef gengið ér ofan að Calumet-vatninu, er þar
að sjá stórt svæði, er ætlað er til líkamsæfinga; þar
eru stórir »cricket»-fletir; þar eru háðir knattleikar
og aðrir fimleikar.
Alt þetta sem nú hefir verið upp talið, miðar til
almennrar hagsældar borgarbúa, enn eftir er að
minnast á heimili einstakra manna. |>að er venja
í Ameríku, að hver fjölskylda býr í sínu húsi,
og svo er einnig í Pullman. Húsin eru mjög mis-
jöfn að stærð og viðhöfn; venjulega með 11 eða
12 herbergjum og þaðan af færri, þó ekki færri enn
3—4 herbergjum. Niðrskipunin í húsunum er
hvarvetna lík : eldhús í kjallaranum, geymslubúr,
þvottahús o. s. frv., og stundum borðstofa. I stofu-
herbergjunum eru daglegar setustofur og gestastof-
ur, enn uppi á loftinu svefnherbergi, og er þangað
leitt bæði kalt og heitt vatn; heita vatuið kemr frá
eldstónni í kjallaranum. 1 hverju húsi er baðher-
bergi og vatnsrennu-salerni. Arið 1883 vóru hús
einstakra manna í Pullman 1426 að tölu, enn munu