Iðunn - 01.06.1886, Síða 154
44S
Kina.
og skýrslur frá háyfirvöldum um landsmál. |>aðan
fáum vjer vorn áreiðanlegasta fróðleik um alla þjóð-
kennilega tilhögun í landinu, um alla landshagi,
um embættaskipanir, og um alla stjórn Kínaveldis.
Með því að öll skjöl,sem þar birtast, hafa verið lögð
fyrir keisarann, er orðalagið á þeim ákaflega tilgerð-
arlegt og viðhafnarmikið. Fyrstu tvær eða þrjár
blaðsíðurnar byrja vanalega á hirðfrjettum og
konunglegum tilskipunnm, sem eru orðaðar mjög
húsbóndalega og hátignarlega, því keisarinn sparar
ekki hirtingar við þjóna sína. J>að getur vel
viljað til, að hinn æðsti varakonungur í ríkinu vakni
við vondan draum einhvern morgun og fái þann
boðskap, að hans keisaralegi húsbóndi sje búinn að
víkja honum frá embætti, eða þá að umkomulaus
sveitastúlka' fái þau óvæntu fagnaðartlðindi, að það
hafi verið látið rigna yfir sig keisaralegum virðingar-
merkjum fyrir það,að hún hafi stundað vel gamla for-
eldrasína í langvinnum sjúkdómi. Nafni hennar verð-
ur á lopti haldið svo sem ljómandi fyrirmynd ástríkr-
ar ræktarsemi við foreldra sína, og engri enskri
hefðarmey getur þótt meira varið í háskólapróf sín
heldur en liinni kínversku systur hennar þykir
koma til þessa merkis um keisaralega velþóknun.
|>egar þjóðinni bera óhöpp að höndum, ber það opt
við, að keisari gefur út sjerstaka tilskipun, þar sem
hann fæst mjög um ávirðingar sínar, og einkanlega
þann hinn mikla glæp, er hann hafi framið með því
að vanrækja að tryggja sjer hylli Drottins til handa
sínum þjáða lýð.
|>ótt liarðstjórn sje í Kína, þá er málfrelsi þar
eigi að síður fyllilega viðurkennt, og í Peking er