Iðunn - 01.06.1886, Blaðsíða 171
Kína.
465
|>egar keisarinn, söm var á undan þessum, tók við
völdum, 1872, gekk sú saga og var lagður á fullur
trúnaður um allt Kínaveldi, að þegar enski sendi-
herrann í Peking gekk fyrir hinn nýja keisara að
árna houum heilla, þá leið yfir hann í anddyrinu
að málstofu keisara, er hann heyrði rödd lians,
■—keisarinn var 15 vetra gamall piltur—;og er sendi-
herrann leit ásjónu hins mikla allvalds, leið hann
aptur niður og varð að bera hann út.
Að pílagrlmsförinni afstaðinni átti hinn ungi keis-
ari þunga þraut fyrir höndum, og það er að velja
sjer konu, eða rjettara sagt konur, 36 að tölu, segja
sumir. Titill þeirrar fyrstu er »hin dyggðumprýdda
og lítilláta húsfreyja í höll keisarans«. En raunar
fær keisarinn sjaldnast að ráða sjálfur, hver fyrir
því hlutskipti verður. Eáðgjafar hans og vanda-
menn hafa fyrir því að jafnaði, með því að þessari
aðal-húsfreyju er ætlað að hafa áhrif á keisara í
stjórnarmálum. þykir því bezt, að hún sje nokkuð
ráðin og roskin, og verða opt miklar sviptingar
\ með ráðgjöfunum og öðrum hlutaðeigendum út af
því kjöri, þar sem hver vill skara eld að sinni köku
og hafa drottningarefnið úr sínu liði.
Fátt vita útlendir menn um brúðkaupssiðí Kín-
verjakeisara. Brúðkaup Tungche keisara var haldið
á náttarþeli, og á laun við alla útlendinga. Keis-
arinn og brúðurin fóru um endilanga borgina (Pe-
king), og var þar uppi fótur og fit; var svo sagt, að
hátíðahaldið hefði kostað ógrynni fjár, en sendi-
herrar annara ríkja og þeirra föruneyti liöfðu fengið
vinsamlega áskorun um að sitja á forvitni sinni;
Xðunn. IV. 30