Iðunn - 01.06.1886, Blaðsíða 130
424
C. St. A. JJille:
hnignar öllum á sama hátt. jpegar borg skal reisa,
er fyrst bygt eitt eða tvö bjálkahús, lá og óséleg;
þau eru grastyrfð, einglugguð og ládyruð; síðan er
klöngrað upp nokkurum byrgjum rir borðum; það
eru búðir, þar sem öllum varninginum er trauað
fram til sýnis þeim megin, er veit að alfaravegi;
þá kemr upp samkomusalr, ölstofan, sem eigi má
án vera, og brennivínskompan, eða heldr tveir enu
einn slíkr salr með knattborði og þess konar leik-
föngum ; svartr skeggrakari; þvottahús kínverskt;
tíðahús (kapella) meþódista eða baptista ; smáskóli;
prentsmiðja með stórum auglýsingum á hurðunum;
smáblað, sem kemr út í viku hverri; málflutnings-
maðr; læknir og lyfjabúð og banki, ef vel gengr,
og þegar bankinn er upp kominn, þjóta húsin upp
eins og gorkúlur. þ>á er farið að keppast um það,
hvar aðalstræti borgarinnar á að vera, og innan
um lítilmótlega frumbýlingakofa rísa nú upp tígu-
legar múrbyggingar hver í kapp við aðra. Enn þvf
hraðara sem borgin byggist, því frumbýlislegri
verðr hún, því minna er skeytt um prýði eða fegrð,
enda heilnæmi og þægindi. Fram undan hverju
húsi er sorphaugr, þar sem alls konar rusli er samk-
að saman. A götunum er versta ófærð, ýmist mold-
viðris ryk eða foræðis bleyta, og fram með liúsun-
um er einungis lögð stétt úr borðum til þess að fært
verði um göturnar. Yera má, að gaslýsing só í
borginni, rafmagnsljós, fréttaþræðir (telegraffar og
telefónar) og enda sporvegir, enn hvergi sér stein-
lagning á götunum. Göturnar eru svo breiðar, að
steinlagniug verðr ókleyf unz borgin er komin í
helztu röð, og er jafnvel hræðilegt að sjá götur,