Iðunn - 01.06.1886, Blaðsíða 135
Borgin Pullman.
429
við stöðuvatn eitt lítið, Calumet, og rennr á úr því
niðr í hið mikla Michigan-vatn. Borgarstæðið er
mörg þúsund ekrur á stærð, og keypti Pullman það
fyrir lítið verð að kalla mátti, þar sem mikilsverð
járnbraut liggr yfir það. þótt borgarstæðið Pull-
mans sé svona langt frá Chicago hefir það verið
talið innan þeirra takrnarka, er Chicago er ætlað
að færast að, ef hún vex svo sem að líkindum lætr,
og takmarkalínan milli hinnar nýju borgar og Chi-
cago yrði þá 111. gatan í Chicago. Pullman skýrði
þremr ungum og efnilegum verkfróðum mönnum
frá fynrætlun sinni, og létu þeir vel yfir henni.
Tóku þeir nú ráð sín saman að fá þessu framgengt
og vinna að borgarbyggingunni.
Ur nýárinu 1880 hófust langar járnbrautalestir
frá Chicago út að hinu nýja fyrirhugaða borgar-
svæði. Fór þangað á morgni hverjum mikill her
verkmanna, sem gekk þar að viimu allan liðlangan
daginu. þeir grófu skurði, sléttuðu, plöntuðu tré,
lögðu rennur, hlóðu ræsi, og fóru á hverju kveldi
að atíoknu starfi heim aftr á járnbrautinni til Chi-
cago. f>ar var bygð tiglsteinssmiðja til að afla
byggingarefnis, og alt var unnið þar á staðnum, tigl-
steinn, trjáviðr og smlðar allar. Var því öllu fyrir-
komið á undrunarverðan hátt, þannig, að hvað studdi
annað án þess nokkuð yrði til hindrunar. Oðara
enn borgarsvæðið var undirbúið, risu upp feikna-
legar verksmiðjur og stórkostlegar vinnuhallir með
gnæfandi turnum og reykháfum ; langar húsaraðir,
tígulegar kirkjur, skólar og almanna stofnanir þutu
upp alt í einu með ótrúlegum hraða. f>egar ég
kom til Pullman, vóru þrjú ár liðin frá því er fyrsta