Iðunn - 01.06.1886, Síða 162
456
Kína.
talsvert af peningum. Kaupmaður fer að finna
yfirvaldið og heimtar þjófinn höndlaðan. Hann
heitir Ohang, og átti heima í Ló-sveit. Nú eru
líldegast ein tíu þorp í þessari sveit, og eptir mikla
leit tekst kaupmanni að finna það þorpið, sem
hínn seki Chang var frá, en með litlu liðsinni af
hálfu yfirvaldsins. En ekki er öll þraut úti enn,
því þá kemur það upp, að það er að minnsta kosti
tylft manna íneð því nafni í því þorpi, og hafa
allir verið mestu ráðvendnis- og saldeysis-dúfur frá
blautu barnsbeini, eptir því sem þeim segist sjálf-
um frá. Láti kaupmaður eigi undan að heldur,
má vera að honum takist að lokum að finna hinn
rjetta Chang, en — peningalausan, því þeirn hefir
hann eytt til að múta yfirvöldunum til þess að
forða sjer undan svona lengi.
Bismarck bar sig eigi alls fyrir löngu aumlega
út af því, að utanríkisstjórnin enska ætlaði alveg
að kæfa sig í skrifum og skjölum; en það eru smá-
muiiir, sem skrifvjelabáknið í Downingstræti (þar
eru skrifstofur utanríkisstjórnarinnar í Lundúnum)
skilar frá sjer, í samanburði við það sem kínversk-
ir stjórnsýslumenn ryðja úr sjer. þeir eru fullnuma
í þeirri list, að þvæla svo málin, að hvorki geri
að reka nje ganga árum saman, og það er fágætt,
að nokkurt mál sje útkljáð svo, að eigi hafi verið
eytt pappír upp á heilan hest til að rita um það
út í yztu æsar. 011 kínversk stjórnarbrjef verða
að vera steypt í sama móti, og ef svarað er brjefi,
verður jafnan að byrja á því að rita upp í heilu
líki öll þau skjöl og skilríki, er svarið á við. þessi
aðferð, að hafa jafnau upp aptur í heilu líki öll