Iðunn - 01.06.1886, Side 118
412
Pjeturskirkjan í Róm.
getið, að inni í kirkjunni eru 46 ölturu, 390 st-and-
myndir, 748 súlur. Sá, sem lauk við að skreyta
kirkjuna og bjó til súlnagöngin,sem lykja umPjeturs-
torgið fyrir framan kirkjuna, var Bernini; fannst sam
tíðarmönnum hansmjög mikið til hans koma, en síð-
ari tíma menn hafa eigi viljað taka undirþað fyllilega.
Loksgat Urban páfi VIII. vígt höfuðkirkju kristn-
innar 18. nóv. 1626. Hún hafði þá kostað hjer
um bil 180 miljónir króna. En óhætt er að marg-
falda þetta með 4 eða 5, ef miða skal við peninga-
gildi nú á tímum. |>ó er þá eigi talinn kostnaður-
inn við Pjeturstorgið, það er að segja súlnagöngin,
sem kostuðu 31milj.; að steinleggja torgið, að koma
fyrir steinstöplinum egipzka,sem stendur þar, og gera
gosbrunnana 4, sem þeyta vatninu 80 fet í lopt upp;
með öllu því hefir hún ugglaust kostað 200 milj. kr.
Ekki ber öllum rithöfundum saman um stærð
kirkjunnar. þ>etta mun vera talið rjettast: lengd
að innan 622 fet, breidd 461 fet, hæð upp undir
livelfinguna 380 fet, að utau 459 fet. Mælt er að
hún taki 54,000 manna. Hún væri því meir en
nóg handa öllum Islendingumí einum hóp, þeim sem
komnir eru yfir fermingu.
Hugsum vjer oss veggi hlaðna umhverfis allan
Austurvöll í Beykjavík, viðlíka háa og dómkirkjuturn-
inn, og reist þak yfir með hæfilegu risi, þá gætu 18
slfkir kofar staðið innan í Pjeturskirkjunni, í þrem-
ur lögum, hverju ofan á öðru, 6 í hverju lagi,
það er að segja ef Pjeturskirkjan væri öll jafnbreið,
og öll jafnhá og hvelfingin; en það er nú raunar ekki.
Henni veitti lítið sem ekkert af allri kvosinni frá
læknum vestur að Aðalstræti og neðan frá sjó