Iðunn - 01.06.1886, Blaðsíða 137
Borgin Pullman.
431
koparsmiða og »elektro-plet«smiða, þá til þeirra, sem
mála og »lakkera«, þá til þeirra, sem fóðra veggina
(tapetsera), þá til húsgagnahirzlunnar, þar sem
eru lampar, speglar, dýrindis vefnaðr, postulín, gler,
léreft og allskonar liúsbúnaðr, unz vagnhöllin í allri
sinni dýrð er að lokum alsmíðuð og send með fleygi-
ferð á stað út um meginland Ameríku, til San
Fraueisco eða New Orleans, til Boston eða Den-
ver. Bétt hjá verksmiðju þéssari, og þó út af fyrir
sig, er lrin mikla pappírshjólaverksmiðja. Pappírs-
hjól eru nú höfð á flestum járnbrautum í Ameríku,
og það hefir reynzt, að þau eru bæði léttari og
traustari enn járnhjólin. Ekki má ætla, að hjól
þessi séu eingöngu ger af pappír, eins og nafnið
bendir á; hjólásinn og umgjörðin er úr járni enn
hitt annað er úr pappír, sem er pressaðr saman með
vélaafli og verðr harðr sem tré, enn nokkuð stælt-
ari. Af pappírshjólum eru smíðuð 12000 um árið
handa verksmiðjum Pullmans og öðrurn verksmiðj-
um, og er verð hjólauna 75—95 dollara hvert.
Enn má nefna hitunarhúsið. I því eru átta
feiknastórir gufukatlar; streymir þaðan hiti í verk-
smiðjurnar og þerrihúsin og í öll hin stærri hús
í borginni. Eru hafðar til þess pípur, er leiða
hitann neðanjarðar.
Vatn8turninn er 200fetáhæð, og er efst á hon-
um vatnsskál, er tekr 2 miljónir potta; vatnsþrýst-
ingin nægir til þess að veita öllum borgarbúum
vatn, og má steypa vatninu yfir hæstu hús í borg-
inni. Er gert ráð fyrir, að veita vatnsstrauminum
úr Calumet-vatninu, enn það hefir þótt kostnaðar-
minna, að ná vatni fyrst um sinn frá Chicago.