Iðunn - 01.06.1886, Side 87
Adolf' Langsted: Hagur kvenna í Spörtu. if81
verjav, heldur fyrir ættjörð sinni. Önnur eins
hreystiþjóð hlýtur að eiga hraustar mæður og þrek-
rniklar, og er það efni greinar þessarar, að lýsa
spartverskum konum svo skýrt og greinilega, sem
söguleg skilríki leyfa.
þar sem fjallið Oeta gengur fram að sjó við
Mala-vík, er örmjó fit milli fjalls og fjöru. þessi
fit heitir Laugaskarð (þermopylæ). f>ar sat Leó-
nídas konungur fyrir Xerxesi Persakonungi á her-
ferð hans til Grikklands. — Xerxes haföi ógrynni
liðs, en Leónídas eina 300 Spartverja og fáeinar
þúsundir manna af öðrum Grikkjum.
Xerxes konungur skellihló, er honum voru sögð
þau tíðindi, að þessi litli hópur ætlaði að verja
honum skarðið; hann gerði Léónídasi orð og bauð
honum að leggja af hendi við sig vopn sín og
þeirra fjelaga. »Komdu og taktu þau !» svaraði
Leónídas. Persakonungur ljet lemja liðsmenn sína
áfram til atlögu með svipuhöggum, en þeir urðu
írá að hverfa eptir mikið mannfall. Skömmu síðar
varð Leónídas þess áskynja, að svikari einn grísk-
ur hafði vísað Persum leið yfir fjallið. Var þá
útsjeð um, að þeim yrði varin leið inn í landið.
Leónídas vildi fyrir engan mun eyða hinu að-
fengna liði til ónýtis, og lætur það því allt frá sjer
fara, en heldur eptir þessum 300 Spartverjum.
Nú veita Persar atgöngu, og ganga þeir Leónídas í
móti þeim þangað, er skarðið var breiðast; mátti
þar betur koma höggum við, og því hægra að
hafa fleiri menn af Persum fyrir sig, áður þeir
fjelagar hnigju að velli. þar fjell Leónídas og