Iðunn - 01.06.1886, Blaðsíða 151
ííína.
445
legt líferni. Confucius,sem var uppi 500 árum fyr-
ir Krist,—en kenningar hans og boðorð eru biflía
Kínverja—hann mat lítils veraldlegar framfarir, og
hann vilcli heldur efla siðgæði manna en efnahag
þeirra. Jafnvel nú á dögum munu fáir Kínverjar
játa, að Norðurálfumenn jafnist við þá að
siðgæði.
|>eir telja kristna trú fullgóða,eigi síður en Búdda-
trú og önnur trúbrögð, að því leyti sem hún kennir
mönnum að gera það sem gott er; en þeir fá eigi
sjeð, að hún hafi liaft mikil áhrif á þjóðir Norður-
álfunnar, er til framkvæmdanna kemur. þeir hafa
sjaldan hafið hernað á hendur öðrum þjóðum að fyrra
bragði, en öll Norðurálfa þykir þeim sem vera muui
herbúðir einar. þeir segjaað Englendingar hrósi sjer af
trú sinni og hinum miklu herskipum, og að Frakkar
sendi trúboðalangt áland upp í Kína.en láti tundur-
báta sína sveima þar með ströndum fram og sökkva í
sæ meinlausum skútum, er verða á vegi fyrir þeim.
þetta er það sem almeuningur í Kína sjer mis-
jafnt í fari Norðurálfubúa. En þeir sjá samt
bæði kost og löst á þeim. þeir hafa reynsluna
fyrir sjer í því, að Norðurálfumenn eru haldinorðir,
og opt gremst þeim það, að Englendingar láta al-
drei jafnvel í freistni leiðast af mútum, en dást
þó jafnframt að því í aðra röndina. þótt Ivínverjar
hafi eigi sömu skoðun á framförum og vjer, þá hafa
þeir þó fært sjer í nyt sumar uppgötvanir vorar.
|>eir taka nú óðum upp gufuskip í stað botnflötu
bátanna sinna, og er nú komið þar á fót öflugt gufu-
skipafjelag, er Iíínverjar kosta sjálfir og veita for-
stöðu.