Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Blaðsíða 25
heilbrigði var það talið ákjósanlegt að samskonar lyfjum fylgdi samskonar
samantekt um eiginleika lyfjanna. Ef lögbært yfirvald í aðildarríki gæti ekki
gefið út, samið eða samþykkt samantekt um eiginleika lyfja sem væru flutt inn
samhliða lyfjum sem þegar hefðu markaðsleyfi, án þess að innflytjandinn gæfi
til þess leyfi, þá þyrfti sá aðili sem stendur að samhliða innflutningi að útbúa
sína eigin samantekt. EFTA-dómstóllinn taldi að slíkar hömlur yrðu þess
valdandi að leyfisveiting yrði kostnaðarsamari og áhrifin myndu þar af leiðandi
jafngilda áhrifum magntakmarkana á innflutning lyfja í skilningi 11. gr. EES-
samningsins. Dómstóllinn komst síðan að þeirri niðurstöðu að væri höfunda-
réttarlöggjöf aðildarríkis látin taka til samantektanna, sem hefði það í för með
sér að lögbær yfirvöld í aðildarrrki gætu ekki gefið út, samþykkt eða samið
sömu samantekt um eiginleika lyfja fyrir samhliða innflutta vöru með sama
hætti og lyf flutt beint inn, myndi það leiða til þess að markaður Evrópska efna-
hagssvæðisins skiptist óeðlilega upp. Slík niðurstaða myndi ganga lengra en
réttlætanlegt væri með vísan til sjónanniða um vemd höfundaréttar slíkra
samantekta.
4.5.3 Notkun eigin hönnunar við endurpakkningu lyfja
I máli Paranova gegn Merck,56 nr. E-3/02, voru atvik með þeim hætti að
bandaríski lyfjaframleiðandinn Merck höfðaði mál fyrir norskum dómstólum
gegn Paranova AS, dönskum aðila sem stundaði samhliða innflutning á lyfjum
Merck til Noregs. Paranova endurpakkaði upprunalegu vörunum og setti vöru-
merki Mercks á pakkningamar ásamt upplýsingum um það hver endurpakkaði
vörunni. Ennfremur voru lóðréttar og láréttar rendur, í sömu litum og fram-
leiðandi vöru notaði, settar á brúnirnar á nýju pakkningunum. Merck höfðaði
mál gegn Paranova til þess að koma í veg fyrir notkun á fyrmefndum röndum.
I álitsbeiðni Hæstaréttar Noregs til EFTA-dómstólsins kom fram að óumdeilt
væri í málinu að endurpakkning lyfja væri nauðsynleg til þess að Paranova gæti
komið vörum sínum á markað. í álitsbeiðni Hæstaréttar var í meginatriðum
óskað svara við því hvort „haldgóðar ástæður“ í skilningi 2. mgr. 7. gr. vöru-
merkjatilskipunarinnar væru fyrir því að koma í veg fyrir áframhaldandi sölu
vörunnar á þeim grundvelli að Paranova hafi sett litaðar rendur í litum Merck á
nýju pakkninguna og hvort slík hönnun á pakkningu væri háð hinum svo-
kölluðu „nauðsynjareglum“ sem mótast hafa í dómafordæmum Evrópudóm-
stólsins.
í úrlausn sinni lagði EFTA-dómstóllinn áherslu á mikilvægi frjálsra vöru-
skipta á mörkuðum sem skiptast eftir landamærum, eins og lyfjamarkaðinum.
Þeim sem stunda samhliða innflutning hafa verið veitt ákveðin forréttindi í
þeim tilgangi að sigrast á þessari skiptingu. Þegar réttur til að endurpakka
lyfjum og notkunar á upprunalegu vörumerki hefur verið viðurkenndur og að-
gangur að markaði þar með tryggður, ber að líta á þann sem stundar samhliða
56 Skýrsla EFTA-dómstólsins 2003, bls. 101.
319