Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Blaðsíða 39
5.3.5 Haldlagning á víxlmenguðu fiskimjöli byggð á varúðarreglunni
vegna hættu á kúariðu
Þegar hefur verið minnst á Bellio Fratelli-málið sem rekið var fyrir Evrópu-
dómstólnum. Málsatvik voru þau að Bellio flutti inn fiskimjöl frá Noregi til
Italíu til framleiðslu á fóðri fyrir dýr, önnur en jórturdýr. Sendingin var gerð
upptæk eftir að þar til bær ítölsk yfirvöld höfðu tekið sýni sem sýndu að
fiskimjölið innihélt brot úr dýrabeinum. Bellio höfðaði mál fyrir ítölskum
dómstóli (Trevesio) sem beindi meðal annars spurningu um beitingu varúðar-
reglunnar til Evrópudómstólsins. Evrópudómstóilinn komst að þeirri niður-
stöðu að ákvæðin sem haldlagningin byggðist á væru samrýmanleg 13. gr. EES-
samningsins. Hvað snerti varúðarregluna og skilyrði fyrir beitingu hennar
vísaði dómstóllinn til úrskurðar EFTA-dómstólsins í Kellogg''s-málinu og þeirra
dóma Evrópudómstólsins sem byggðir voru á þeim úrskurði.102
6. LOKAORÐ
Þegar starfsemi EFTA-dómstólsins fyrstu tíu starfsárin er skoðuð kemur í
Ijós að við túlkun og beitingu EES-reglna nálgast menn viðfangsefnið úr
þremur áttum. í málum er varða EFTA-stoð Evrópska efnahagssvæðisins túlkar
EFTA-dómstóllinn (og dómstólar EES/EFTA-ríkjanna) EES-reglurnar. í málum
er varða EB-stoð Evrópska efnahagssvæðisins túlkar Evrópudómstóllinn og
dómstólar aðildarríkja EB réttarreglur bandalagsins sem eru í grundvallaratrið-
um efnislega samhljóða EES-rétti. í málum er varða ríkisborgara og lögaðila
EFTA-ríkjanna, sem heyra undir dómstóla aðildarríkja Evrópubandalagsins,
túlkar Evrópudómstóllinn EES-réttarreglur. í öllum tilfellum er meginmarkmið
dómstólanna að tryggja einsleita túlkun á EES-samningnum. Við túlkun og
beitingu EFTA-dómstólsins á EES-reglum er einsleitni þýðingarmikið atriði.
Samkvæmt orðalagi EES-samningsins fela reglumar um einsleitni að litlu leyti
í sér gagnkvæmar skyldur samningsaðilanna. Reglumar gera ráð fyrir því að
Evrópudómstóllinn svari spurningum um álitaefni og EFTA-dómstóllinn fylgi
fordæmi hans. í raun hefur EFTA-dómstóllinn hins vegar staðið frammi fyrir
spumingum sem ekki, eða aðeins að hluta til, hefur áður verið svarað af
Evrópudómstólnum. í slíkum tilvikum hefur Evrópudómstóllinn og undirréttur-
inn tekið skýrt fram að skyldan til að tryggja einsleita túlkun EES-reglna hvíli
ekki aðeins á öðmm aðilanum. Þeir hafa í túlkun sinni á löggjöf bandalagsins
vísað til dómafordæma hins litla systurréttar síns hinum megin við götuna sem
hefur, sérstaklega í málum er varða matvælaöryggi, þróast í þá átt að vera
„herrschaftsfreien judiziellen Diskurs“. í Kellogg''s-málinu vék EFTA-dóm-
stóllinn að nokkru leyti frá fyrra fordæmi Evrópudómstólsins og fylgdi Evrópu-
dómstóllinn í kjölfarið. Gera má ráð fyrir því að Evrópudómstóllinn og undir-
rétturinn séu móttækilegri fyrir dómum EFTA-dómstólsins þar sem EFTA-
102 Mál nr. 286/02, dómur frá 1. aprfl 2004, bls. 57, 58., 59. og 60. málsgrein.
333