Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Page 79
[A] ... decision of the EEA Joint Committee may constitute a simplified form of an
international agreement between the Community and its Member States on the one
hand, and the EFTA States party to the EEA Agreement on other.96
Akvarðanir sem sameiginlega EES-nefndin tekur eru vel innan marka
þjóðaréttar.
Eins og áður kom fram fór norska ríkisstjómin fram á að hugtakið skaða-
bótaábyrgð ríkisins yrði endurskoðað. Dómstóllinn staðfesti niðurstöðu sína í
máli Erlu Maríu Sveinbjörnsdóttur og taldi „þótt ekki væri miðað við að EES-
reglur hefðu bein réttaráhrif útilokaði það ekki skyldu ríkisins til að bæta það
tjón ... “ og að mótun meginreglunnar um skaðabótaábyrgð ríkisins sem hluta
EES-samningsins væri frábragðin þróun meginreglunnar í bandalagsrétti. Beit-
ing þessara reglna þyrfti því ekki að vera að öllu leyti eins. Hægt er að umorða
ummæli dómstólsins með þeim hætti að samsvarandi rökstuðningur sem leiddi
til svipaðrar niðurstöðu er ekki það sama og yfirþjóðlegt vald.
Að mati höfundar mun ákveðin togstreita verða áfram við lýði og bæði
stjómmálamenn og handhafar dómsvalds verða að glíma við vandann. í sumum
tilvikum gæti þetta leitt til verkaskiptingar á landsvísu. í Finanger-málinu97
byggði Hæstiréttur Noregs, í máli milli einstaklinga, á lagaákvæði sem EFTA-
dómstóllinn hafði talið ósamrýmanlegt EES-rétti.98 Á sama tíma lagði ríkis-
stjómin fram framvarp til breytinga á ákvæðinu í samræmi við ráðgefandi álit.
I kjölfar úrskurðar Hæstaréttar höfðaði Finanger skaðabótamál gegn norska
ríkinu sem nú er rekið fyrir norskum dómstólum. Enn sem komið er hefur
norska ríkisstjómin gefið í skyn að hún andmæli ekki meginreglunni um
skaðabótaábyrgð ríkisins sem slíkri.
Umfjöllun um eiginleika, flokkun og skilyrði EES-réttarkerfisins mun án
efa verða haldið áfram. Vonandi mun dómaframkvæmd EFTA-dómstólsins sem
fyrr hvetja til slíkrar umræðu. Ef sú þróun, sem orðið getur á umfangi skaða-
bótaábyrgðar ríkisins í bandalagsrétti, verður að veruleika mun það að öllum
líkindum hafa afleiðingar fyrir EES-réttinn. í máli Karís K. Karlssonar skýrði
EFTA-dómstóllinn frekar niðurstöðu sína í máli Erlu Maríu Sveinbjörnsdóttur.
Það er óhætt að fullyrða að staða og áframhaldandi þróun markaðar Evrópska
efnahagssvæðisins mun áfram verða til umfjöllunar á vettvangi EFTA-dóm-
stólsins.
96 Mál nr. E-6/01 CIBA Specialty Chemicals Water Treatment Ltd og fl. gegn Noregi. Skýrsla
EFTA-dómstólsins 2002, bls. 281, 33. málsgrein.
97 Norsk Retstidende. 2000, bls. 1811.
98 Mál nr. E-l/99, Finanger. Skýrsla EFTA-dómstólsins 1999, bls. 119.
373