Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Side 90

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Side 90
1.6 Samningsbrotamál - beiðnir um ráðgefandi álit 1.6.1 Almenn atriði Ahrif úrlausna EFTA-dómstólsins velta að sjálfsögðu fyrst og fremst á eðli hvers máls um sig. Af þeim tegundum mála sem áður voru talin og falla undir lögsögu EFTA-dómstólsins eru það fyrst og fremst tvenns konar mál sem komið hafa til kasta dómstólsins á tíu ára starfstíma hans, þ.e. samningsbrota- mál og ráðgefandi álit. Verður næst vikið að þeim tveimur tegundum mála. Þegar ESA höfðar samningsbrotamál gegn EFTA-ríki (31. gr. ESD) eða þegar eitt EFTA-ríki höfðar mál gegn öðru EFTA-ríki (32. gr. ESD) skulu hlutaðeigandi EFTA-ríki eins og áður segir gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að framfylgja úrlausnum EFTA-dómstólsins. EFTA-dómstóllinn hefur enn sem komið er aðeins dæmt í einu máli samkvæmt fyrmefndum ákvæðum sem varðar Island, þ.e. í samningsbrotamáli samkvæmt 31. gr., en það mál höfðaði ESA gegn ríkisstjóm Islands vegna ágreinings um lögmæti flugvallarskatts á íslandi. Sjá dóm EFTA-dómstólsins frá 12. desember 2003 í málinu nr. E-l/03, Eftirlitsstofnun EFTA gegn íslandi, Skýrsla EFTA-dómstólsins 2003, bls. 145. Að öðru leyti hafa öll mál sem varðað hafa ísland verið höfðuð skv. 34. gr. samningsins um stofnun ESA og dómstóls, þ.e.a.s. innlendur dómstóll hefur leitað til EFTA-dómstólsins eftir ráðgefandi áliti um túlkun á EES-samn- ingnum. Innlendum dómstólum er í sjálfsvald sett hvort þeir leita eftir ráðgefandi áliti og hafa dómar í slíkum málum ekki bindandi áhrif á úrlausnir þeirra. Sú staðreynd að nær allir dómar EFTA-dómstólsins sem varða ísland hafa hingað til ekki verið bindandi fyrir innlenda dómstóla þýðir ekki að framkvæmd þeirra skipti minna máli en ella, heldur þvert á móti. Það fyrirkomulag sem felur í sér ráðgefandi álit er sett fram með markmiðin um einsleitni og samræmda túlkun og beitingu að leiðarljósi. Svo þessum markmiðum verði náð er afar mikilvægt að dómar dómstólsins séu virtir, og eins og minnst var á í upphafi er ætlunin hér að skoða hvernig þessurn málum hagar til á íslandi. 1.6.2 Samningsbrotamál Um samningsbrotamál er fjallað í 31. gr. ESD-samningsins. Þar segir að telji Eftirlitsstofnun EFTA að EFTA-rflci hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt EES-samningnum eða ESD-samningnum skuli hún, nema kveðið sé á um annað í ESD-samningnum, leggja fram rökstutt álit sitt um málið eftir að hafa gefið viðkomandi n'ki tækifæri til að gera grein fyrir máli sínu. Ef viðkom- andi ríki breytir ekki í samræmi við álitið innan þess frests sem Eftirlitsstofnun EFTA setur, getur hún vísað málinu til EFTA-dómstólsins. Samkvæmt 33. gr. ESD skulu hlutaðeigandi rflci gera nauðsynlegar ráðstafanir til að framfylgja dómum EFTA-dómstólsins.18 18 Um þessa tegund mála sjá nánar Stefán Már Stefánsson, áður tilvitnað rit, bls. 1070-1071. 384
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.