Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Page 29

Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Page 29
2 um tilfinningagreind er. Þótt sól hennar hafi skinið skært í alþýðusálfræði síðustu árin hefur hún sætt sívaxandi gagnrýni meðal akademískra sálfræðinga. Gagnrýnin bein- ist að líffræðinni að baki tilfinningagreind, hugtakanotkun forsvarsmanna hennar og mælitækjum. Líffræðil­eg­u efasemdirnar snerta staðhæfingar Golemans um möndlung- inn sem miðstöð tilfinningahugans (bergmálaðar í L, bls. 36–37). Þótt viðurkennt sé að alvarleg (sjúkleg) skerðing á tilfinningafærni kunni að eiga þar upptök sín þá hefur ekki tekist að sýna fram á neitt samband milli tiltekinnar heilastarfsemi og tiltekinna geðshræringa (sjá Matthews, Zeidner og Roberts, 2002, bls. 545–546). Sjálft hug­t­akið tilfinningagreind þykir einnig viðsjált. Stundum viðhafa tilfinningagreindarfræðingar það sem nokkurs konar samheiti yfir alla jákvæða sálræna hæfileika fólks sem hefð- bundin greindarpróf mæla ekki; en þegar þeir tálga hugtakið betur kemur í ljós að það er samþýðanlegt ýmsum öðrum sálfræðihugtökum sem þegar liggja fyrir víðtækar rannsóknir á, svo sem „jákvæður persónuleiki/sjálfsmynd“. „Tilfinningagreind“ er þá lítið annað en nýtt vín á gömlum belgjum (Matthews o.fl., 2002, bls. 12 og 527). í þriðja lagi hafa margvíslegar efasemdir verið orðaðar um mæl­it­ækin sem notuð eru til að meta meinta tilfinningagreind fólks. algengast þeirra er kvarði Reuven Bar-Ons (EQ-i) en hann er sjálfsmatstæki sem lætur fólk meta ýmiss konar tilfinningahneigðir og sálræna færni sjálfs sín. Þessum kvarða hefur verið lagt tvennt til lasts: að hann bjóði, eins og flest önnur sjálfsmatstæki, heim alls kyns huglægri ónákvæmni og sjálfs- blekkingum, og að niðurstöður hans komi venjulega heim og saman við útkomuna úr öðrum persónuleikaprófum sem þrautreynd eru og notuð hafa verið áratugum saman (Matthews o.fl., 2002, bls. 15, 23, 41, 515 og 525). Samkvæmt þessu öllu saman er tilfinn- ingagreindarhugtakið í besta falli óþarft, í því versta óskýrt og villandi. auk þessara almennu efasemda hafa ýmsir vefengt kostinn á því að efla tilfinninga- greind í skólastofunni undir handarjaðri félagsþroska- og tilfinninganáms: a) sjálft til- finningagreindarhugtakið sé byggt á of veikum grunni (sjá að framan) til að rétt sé að gera það að grunnhugtaki í mikilvægri kennslugrein; b) fáar rannsóknir séu enn til á árangri félagsþroska- og tilfinninganáms sem reist sé markvisst á hugmynd Golemans og félaga; þær jákvæðu niðurstöður sem vissulega liggi fyrir um árangur slíks náms tengist fremur eldri áætlunum, t.d. um forvarnir gegn eiturlyfjum, sem nýttar hafi verið innan vébanda sömu greinar; c) rannsóknir á árangri séu sjaldan vísindalegar (með skírskotunum til samanburðarhópa er ekki hafi fengið sömu kennslu); d) ekki sé gert ráð fyrir Hawthorne-áhrifunum alþekktu; e) ekki hafi verið rannsakað hve lengi áhrifin af kennslunni vara; og f) ýkjukenndar staðhæfingar Golemans um að tilfinn- ingagreind gefi mun betri vísbendingu um námsárangur en niðurstaða greindarprófa hafi ekki staðist nákvæma skoðun (sjá Mayer og Cobb, 2000; Matthews o.fl., 2002). v­el má vera að þessar efasemdir og mótbárur lýsi umfram allt bölmóði og íhaldssemi hefðbundinna sálfræðinga er fælist allar nýjungar; engu að síður er það höfundum L til nokkurs vansa að hafa að engu getið þeirra eða reynt að svara þeim. Meginefasemd mín sem siðfræðings um þá grunnhugmynd – tilfinningagreindina – sem liggur að baki L er þó ekki af sama tagi og þær sem raktar hafa verið hér að framan. Hún lýtur fremur að því að tilfinningagreindina skorti siðferðil­eg­a dýpt­. Ég hef áður lýst því hvernig námskrárnar íslensku fyrir leik- og grunnskólann viðhaldi jafnvægi milli siðferðilegra og sálrænna markmiða; á það brestur nokkuð í L. Ekki má KRISTJÁn KRISTJÁnSSon
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.