Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Blaðsíða 48
48
Guided Instruction (CGI) og hefur það verið þýtt á íslensku sem Stærðfræðikennsla byggð
á skilningi barna (SKSB) (anna Kristjánsdóttir, Jónína vala Kristinsdóttir og Matthildur
Guðmundsdóttir, 1996). Rannsóknirnar byggjast á kenningum um hugsmíði. Eins og
heitið ber með sér er hugmyndafræðin að baki rannsóknunum sú að kennarar þurfi
að greina hver skilningur nemenda þeirra sé og nýta sér þá þekkingu til að byggja á
við kennslu sína. í ljós kom að þeir kennarar sem lögðu sig fram við að nýta sér þá
þekkingu sem þeir höfðu aflað sér um hugsun barna breyttu kennslu sinni þegar þeir
sáu hvernig þessi þekking nýttist þeim til að skilja hugsun nemenda sinna og þróun
skilnings þeirra á tölum og reikniaðgerðum. En breytingar gerast skref fyrir skref og
jafnvel mánaðarlangt námskeið var bara byrjunin á ferli þar sem stöðugt var þörf á
stuðningi næstu árin. Eitt af því sem virtist vera kennurunum mikilvægt var að geta
tekið þátt í umræðum um kennslu sína við aðra kennara sem einnig voru að glíma
við það hvernig þeir gætu notað þekkingu sína í kennslunni (Fennema, Carpenter,
Franke, Levi, Jacobs og Empson, 1996; Carpenter o.fl., 1999).
Fleiri rannsóknir í Bandríkjunum á stærðfræðinámi barna hafa leitt til rannsókna
á þróun kennara í starfi. Rannsóknirnar á samskiptum barna sem greint var frá hér
að framan (The Purdue ProblemCentered Mathematics Project) leiddu til rannsóknar á
starfi kennarans sem kenndi börnunum sem þátt tóku í rannsókninni. Upphaflega var
ekki ætlunin að skoða þróun kennarans sérstaklega. í viðtölunum við hann og við úr-
vinnslu á því sem fram fór í kennslustundum kom þó í ljós að kennarinn var stöðugt
að nýta sér reynslu sína til að endurskoða kennsluna og laga hana að breyttum viðhorf-
um sínum. Rannsakendurnir gerðu sér smám saman grein fyrir að kennarinn lærði
ekki síður en nemendur af því að endurskoða markvisst kennsluhætti sína. Hann fékk
tækifæri til að ræða það sem hann var að gera við fagfólk sem var að skoða samskipti
barnanna í stærðfræðitímum og í því samspili þróaðist vinna hans (Wood, Cobb og
Yackel, 1991).
við Oxford-háskóla, Department of Educational Studies, hefur Barbara Jaworski
unnið að rannsóknum á starfi kennara sem hafa notað það sem hún kallar rannsóknar-
nálgun við kennslu (Jaworski, 1996). Kennararnir hafa lagt áherslu á að nemendur fái
verkefni sem hvetja þá til að spyrja spurninga, rannsaka, greina og vinna úr upplýsing-
um og rökstyðja lausnir sínar. verkefnin þurfa að vera þess eðlis að við vinnuna öðlist
nemendur nýja sýn á stærðfræðina, komi auga á samhengi sem þeir þekktu ekki áður
eða uppgötvi ný mynstur eða reglur.
Jaworski leggur áherslu á að það eru ekki aðeins nemendur sem eru að rannsaka
og uppgötva. Kennarinn lærir líka af því að vinna með nemendum og styðja við nám
þeirra. Hann nýtir við það þekkingu sína og reynslu og byggir svo áframhaldandi
kennslu á þessari nýju reynslu sinni.
Kenningar um hugsmíði
Þegar ég kynntist fyrst kenningum um hugsmíði heillaðist ég mjög af þeim og fannst
ég finna í þeim samhljóm við það hvernig ég sjálf skil veruleikann og sjónarhorn mitt á
hvernig nám fer fram. Mér fannst ég ekki vera að lesa nein ný sannindi heldur fá hjálp
við að skilja það sem ég var að reyna að móta hugmyndir mínar um. Trúin á það að
AÐ LæRA AF E IG In KEnnSLU