Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Blaðsíða 12
HVAÐ BREYT IST Í SKÓLUM ÞEGAR S JÁ LFSMAT ER GERT?
12
einkum af matsfræðingum, sem telja að tilraunasnið sé vissulega gott í sumum tilvik-
um, en að það geti alls ekki náð fram allri þeirri breidd sem þurfi að vera í rannsókna-
sniðum til að finna svör við margs konar spurningum um skólastarf. Meðal þeirra sem
hafa gagnrýnt þetta er Chatterji (2004), sem leggur til að notaðar séu margar langtíma-
aðferðir í stað tilraunasniða þegar breytingar eiga að verða á löngum tíma. Til þess að
slíkar langtímaaðferðir sýni vel hvað breytist telur Chatterji að sniðið þurfi að taka
mið af: (a) nægri tímalengd; (b) kenningunni sem stuðst er við í starfinu sem verið er
að skoða og að rannsóknin þurfi að taka til allra þeirra þátta sem geti haft áhrif á ár-
angurinn (umhverfis, kerfis og staðsetningar); (c) bæði leiðsagnarmati og lokamati og
leiðsögn fyrir helstu hagsmunaaðila um hvernig best sé að bæta heldni við aðferðina;
(d) beinskeyttum matsspurningum og könnunum á vettvangi; og (e) bæði eigindleg-
um og megindlegum aðferðum til að öðlast skilning á því hvernig, hvers vegna og
hvenær aðferðin tókst eða tókst ekki, og til að undirbyggja túlkun á niðurstöðum.
Stig í breytingum á skólastarfi
Oft er erfitt að breyta skólastarfi því að skólar geta verið íhaldssamir og tregir til
breytinga. Kennarar verða vanafastir og hika við að breyta því sem þeir eru sáttir við.
Fullan (2001) stakk upp á þrem stigum sem skólar yrðu að fara í gegnum til þess að
breytingar, eins og til dæmis þær lögskipuðu sjálfsmatstilraunir sem hér voru gerðar,
skjóti rótum og komi að gagni. Þessi stig eru: (a) að hefja verkið; (b) að útfæra það; og
(c) að gera það að sínu. Oft eru síðari stigin mun erfiðari í framkvæmd en það fyrsta.
Matsspurningar
Þar sem efasemda hefur gætt um getu starfsfólks skóla til að meta eigið starf og jafn-
vel um ágæti þess framtaks þótti mikilvægt að skoða hvort skólarnir hefðu ávinning
af því að taka á sig þetta aukastarf og þá hvern. Skilgreining Leithwood, aitken og
Janzi (2001) á helstu þáttum í skólastarfi var notuð til að kanna áhrif sjálfsmats á skóla-
starfið. Matsspurningin var því þessi:
Hverju breytir sjálfsmat í skólum um eftirtalda þætti?
skólamenningu
skipulag skólastarfs
hvaðan markmið skólastarfs koma
hvernig fylgst er með því hvort markmið nást
hvatningu til að bæta sig í starfi
kerfisbundna gagnaöflun
ákvarðanir um að bæta skólastarfið
Niðurstöður verða skoðaðar út frá þeim kenningum sem að framan hafa verið ræddar,
þ.e. valdeflingu, rökræðulýðræði, aðferðarheldni og margs konar langtímaaðferðum.
•
•
•
•
•
•
•