Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Blaðsíða 117

Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Blaðsíða 117
117 aðilar atvinnulífsins sem eiga hlutdeild í þróun starfsnáms á framhaldsskólastigi hafa stundum staðið í vegi fyrir því að skólakerfið þrói stuttar starfsnámsbrautir fyrir aðstoðarfólk við ýmsar starfsstéttir. Styttra starfsnám sem er stór þáttur í að gera skól- ana að menntastofnunum fyrir alla hefur því ekki þróast sem skyldi. að undanförnu hefur þetta breyst og er ánægjulegt að sjá hve margar starfsnámsbrautir hafa sprottið upp. Má þar nefna nám fyrir aðstoðarþjóna, félagsliða, skólaliða, leiðbeinendur í leik- skólum og bókasafnstækna. Enn vantar þó styttri starfsnámsbrautir sem strákar hafa áhuga á, t.d. í tæknigreinum. Undanfarin ár hafa margir umsækjendur um skólavist einungis fengið neikvæð svör við umsóknum sínum þegar skólar hafa lokið inntöku nemenda. Þetta á sérstak- lega við um höfuðborgarsvæðið. Komið hefur fyrir að umsóknir um almenna náms- braut eða starfsbraut fatlaðra hafi gengið milli skóla og verið hafnað í mörgum skól- um. Það er vonandi tímanna tákn að síðastliðið sumar varð stór breyting á þessu og allir nýnemar fengu skólavist þótt ekki væri það alltaf í þeim skóla sem þeir kusu. í fyrsta skipti síðan starfsbrautir hófu starfsemi fengu allir fatlaðir umsækjendur skóla- vist. Það er ánægjulegt að geta merkt hæga hugarfarsbreytingu hjá skólum í þá átt að vilja þjóna breiðari hópi en áður. Eins og hér hefur verið reifað er framhaldsskólinn á réttri leið með að veita öllum menntun við hæfi. Ég hef lýst því hvernig hann hefur stöðugt færst nær því takmarki á undanförnum áratugum. Það sem ég tel að á skorti eru eftirtaldir þættir: almenn námsbraut er ekki fullmótuð. í skólanámskrám þeirra skóla sem hafa skipu- lagt slíka braut koma fram mismunandi útfærslur. v­íðast hvar er lögð megináhersla á bóklegar greinar en hlutverk brautarinnar er ekki síst að gefa nemendum tækifæri til að glíma við önnur viðfangsefni í námi og veita þeim leiðsögn og hvatningu til að velja viðfangsefni við hæfi. Hún ætti að vera í flestum skólum og nýtast sem brú til atvinnu eða frekara náms, sérstaklega styttri starfsnámsbrauta. Mikilvægt er að skipuleggja styttri starfsnámsbrautir sem nýtast í atvinnulífi og henta þeim nemendum sem minni hæfni hafa til bóknáms og lengra starfsnáms. Fjölg- un slíkra brauta, ekki síst á sviði tækni og framleiðslu, kæmi stórum hópi nemenda til góða, t.d. sem hluti af eða framhald af almennri námsbraut. Starfsþjálfun þarf að vera hluti námsins. Nemendur af erlendum uppruna sem ekki hafa náð nægilega góðum tökum á íslensku eiga mjög í vök að verjast og tæpast hægt að segja að framhaldsskólinn henti þeim. Margir skólar kenna íslensku sem annað tungumál og styðja vel við nemend- urna en langt er í land að allir fái nám við hæfi. Þessa nemendur skortir stuðning í öðrum námsgreinum og aðstoð við námið, t.d. með jafningjakennslu. Nokkur hópur nemenda finnur ekki ennþá nám við hæfi í framhaldsskólum. Ástæð- an kann að vera seinfærni eða námsvandi vegna t.d. leshömlunar, ofvirkni eða geð- rænna vandamála án þess að þeir teljist fatlaðir. Þeir hafa ekki getu til að stunda nám á almennri námsbraut og starfsbraut fyrir fatlaða hentar ekki heldur. Þessir nemendur þurfa aukinn stuðning, kennslu í litlum hópum og að einhverju leyti einstaklingsbund- ið nám. Þeirra bíður ekkert nema brottfall úr námi ef ekki er tekið á málum þeirra. Tryggja þarf að fötluðum nemendum verði aldrei vísað frá framhaldsskóla. Til þess EYGLÓ EY JÓLFSDÓTT I R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.