Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Page 72

Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Page 72
72 Fylg­nis­ambönd­ á g­r­ennd­ar­s­tig­inu í töflu 2 getur að líta fylgnisambönd allra grenndarmælinga. Sérstaka athygli vekur fylgni félagsgerðareinkenna við frávikshegðun. í fyrsta lagi kemur fram neikvæð fylgni á milli fjölskyldustöðugleika skólahverfa og umfangs frávika, það er í skóla- hverfum þar sem hlutfallslega margir unglingar búa hjá báðum foreldrum sínum er afbrotahegðun og fíkniefnaneysla að jafnaði mun minni (r = –0,46 og –0,55). Þessi niðurstaða er í samræmi við væntingar okkar og staðfestir niðurstöður erlendra rann- sókna á þessu sviði (Sampson og Groves, 1989; Sampson, Raudenbush og Earls, 1997). Ennfremur styður þessi niðurstaða kenningar um félagsauð og félagslega óreiðu sem gera ráð fyrir því að fjölskyldustöðugleiki fari saman með félagslegu taumhaldi á börn- um og unglingum í grenndarsamfélaginu (Sampson og Groves, 1989).2 í öðru lagi hafa búferlaflutningar jákvæða fylgni við umfang frávikshegðunar, það er afbrotahegðun og fíkniefnaneysla er meiri eftir því sem stærra hlutfall unglinga hefur flutt í nýtt hverfi eða sveitarfélag undanfarið ár (r = 0,41 og 0,32). Þessi niður- staða kemur heim og saman við nýlega greiningu á þessum sömu gögnum sem leiddi í ljós jákvæð tengsl á milli búferlaflutninga og umfangs ofbeldishegðunar meðal ung- lingspilta (Jón Gunnar Bernburg og Þórólfur Þórlindsson, 2005). Ætla má að í grennd- arsamfélögum sem einkennast af miklum búferlaflutningum séu félagsnet gisnari, það er unglingar þekki síður jafnaldra sína í skólanum, foreldrar þekki síður aðra foreldra og íbúar þekki síður nágranna sína. afleiðingin er minni samstaða meðal foreldra og nágranna um félagslegt taumhald og veikara grenndareftirlit (t.d. að fólk skiptir sér síður af því hvað er að gerast úti á götu eða í næsta húsi; sjá Sampson o.fl., 1997). Túlkun okkar til stuðnings kemur fram marktæk, neikvæð fylgni á milli þess hve þétt félagsleg tengslanet eru við umfang afbrotahegðunar og fíkniefnaneyslu (r = –0,36 og –0,51). í þriðja lagi kemur fram fylgni á milli atvinnuleysis foreldra og frávikshegðunar; eftir því sem hlutfallslegur fjöldi atvinnulausra foreldra eykst, þeim mun meira er um- fang afbrotahegðunar og fíkniefnaneyslu að jafnaði (r = 0,38 og 0,36). Ekki kemur fram marktæk fylgni á milli hlutfalls háskólamenntaðra foreldra og umfangs afbrotahegðunar. óvænt jákvætt samband kemur aftur á móti fram á milli há- skólamenntunar foreldra og umfangs fíkniefnaneyslu (r = 0,25). Eins og fram kemur hér á eftir virðist þó vera um sýndarsamband (e. spurious relationship) að ræða. 2 Reyndar mætti búast við því, þar sem fjölskyldustöðugleiki ætti að hafa fylgni við efnahagslega stöðu foreldra, að þetta samband endurspegli í raun áhrif bágs efnahags foreldra á frávik. Fjöl- breytugreining gagnanna styður þó ekki þá túlkun (ekki sýnt í töflu). Ekkert samband kemur fram í gögnum okkar á milli stéttarstöðu foreldra (þ.e. meðalstéttarstöðu foreldra í skólahverfinu) og umfangs frávikshegðunar, og breytist samband fjölskyldustöðugleika og frávika því ekkert við það að stjórna fyrir stéttarstöðu og háskólamenntun foreldra í skólahverfinu. í þessu sambandi ber þó að hafa það hugfast að í gögnum okkar eru engar beinar mælingar á efnahagslegri stöðu foreldra eða fátækt á heimili. ÞAÐ ÞARF ÞoRP …
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.