Morgunn - 01.12.1920, Síða 48
126
HORGUNN
hvort annað gegn allri trúgirni og staðlausum hugarburði.
Og að sjálfsögðu er æfinlega mikilsvert að vera á verði
gegn slíku, en ekki sízt þegar og þar sem mikið er að
gerast af furðulegurn atburðum. Frú Leonard sagðist líka
hafa hugsað um það, en hún hefði gert meira en heyra,
því að hún hefði séð einkennisbúning gasmannsins.
Því næst sagði hún honum frá stúlkunni af efra loft-
inu og að hann hefði rétt henni þening. Þá varð hann
að kannast við, að hún hefði séð hann, þó að hann hefði
áreiðanlega ekki séð hana. Hann sagði, að þetta hefði
verið gasmaðurinn og að meðan þeir hefðu verið að tala
saman, hefði hann fengið stúlkunni sex pence fyrir ein-
hvern smágreiða, sem liún hei'ði gert honum fyrir tveim-
ur eða þremur dögum. Hann hafði þá ekki haft neina
smápeninga á sér, og hann liafði ekki miust á þetta við
konu sína— hafði gleymt því, þar til er stúlkan fór fram
hjá honum þarna í dyrunum.
Þá sagði hún honum frá ókunna manninum, að hún
hefði séð hann hjá hjónunum og heyrt þau bjóða honum
á fundinn, sem átti að verða þá um daginn. Maðurinn
hennar sagði, að þarna hlyti henni að hafa skjátlast, því
að hún vissi það vel, að þau mundu aldrei hieypa nein-
um manni inn á sína íundi, enda heiðu þau aldrei gert
það. Hún kvaðst búast við, að sér hefði skjátlást, en hún
hefði samt séð hann svo einstaklega greinilega. Hún lýsti
þessum ókunna manni nákvæmlega, og sagði honum líka
af Philip o g þessari Gðlrþrúði, sem hún vissi engin,
deili á.
Nil var dyrabjöllunni bringt, liúsbóndinn fór fram til
þess að taka á ínóti gestunum og vísaði þeim inn. Ilann
kom til konu sinuar í geðshræring, sagði henni, að hjón-
in væru komin, og með þeim væri maðurinn, sem hún
hefði lýst fyrir sér. Frúin fór inn til gestanna og sá, að
þetta var sami maðurinn, sem hún hafði aéð í leiðslunni.
Henni varð svo mikið um það, að hún gat litið við gest-
ina talað, og ekki sagt þeim á uudan fundinum, hvað