Morgunn - 01.12.1920, Page 163
5kýrslur ug rEikningar
' Sálarrannsóknafélags Islands 1919.
Stjór n:
Einar H. Kvaran rithöfundur, forseti.
Haraldur Níelsson prófessor, varaforseti.
Sigurður Lárusson cand. theol., skrifari.
Sigurjón Pétursson kaupmaður, fjárm.ritari.
Snæbjörn Arnljótsson kaupmaður, gjaldkeri.
Ásgeir Sigurðsson konsúll.
Þórður Sveinsson geðveikralæknir.
EndurskGðunarmenn:
Indriði Einarsson, rithöfundur.
Vilhelm Knudsen, verzlunarmaður.
fírsskýrsla forsEta
á aflalfundi 5. R. F. I. 1S. ðesembar 1919.
S. R. F. I. verður ársgamalt á morgun. Þó að
þetta afmælisbarn sé ungt enn, er mér óhætt að full-
yrða, að það hafi vakið mikla eftirtekt um alt land. Mér
skilst lika svo, sem mörgum þyki vænt um það.
Áður en við, sem kosnir vorum í stjórn félagsins fyr-
ir ári, skilurn af okkur þvi umboði, sem við höfum
farið með fyrir félagið, þykir mér við eiga, að eg fari
nokkurum orðum um starfsemi þess, bæði á þessu ári, sem
liðið er, og eins eftirleiðis, eftir því sem eg hugsa mér
hana.
Eins og reikningarnir bera með sér, sem lagðir verða
fram á þessum fundi, hafa félagsmenn þetta ár verið 450.
Það er meiri mannfjöldi en eg gerði mér nokkura von um