Morgunn - 01.12.1940, Page 8
184
MORGUNN
Einar H. Kvaran andaðist, eins og kunnugt er, 78 ára
að aldri. Spádómurinn var þá 14 ára gamall.
. 'Síðasta veturinn, sem E. H. K. lifði hér í heimi, fór
þess að verða vart, að móðir hans væri mjög með honum,
en hún var önduð fyrir nærfellt 60 árum og hafði senni-
lega aldrei gert vart við sig á öllum þeim fjölda af sam-
bandsfundum, sem hann hafði setið með miðlum. Benti
það ekki til þess, að henni væri kunnugt um, að nú færi
hann að þarfnast móðurástar hennar í annað sinn?
Frá hr. Einari Loftssyni hefir mér borizt eftirfarandi
frásögn af miðilsfundi, þar sem sagt var fyrir andlát E.
H. K. allnákvæmlega:
„Þann 5. apríl 1938, hlaut ég tækifæri til að vera á
einkafundi hjá frú Guðrúnu Guðmundsdóttur. Meðal
þeirra, er gerðu vart við sig á fundi þessum og sönnuðu
nærveru sína, var Sigurður H. Kvaran læknir, bróðir Ein
ars. Notaði hann tækifærið m. a. til þess að rifja upp
ýms atriði frá samveru okkar á Eskifirði, og sumt af því,
er hann minnti mig á við þetta tækifæri, var þess eðlis,
að ekki gátu aðrir um vitað, en við einir. En áður en
hann vék frá sambandinu, fór hann að tala um Einar
bróður sinn og heilsu hans. Hann sagði að sér væri orðið
það fyllilega ljóst, að líkamskraftar hans gætu ekki enzt
lengi úr þessu og lét þess getið, að ekki myndi langt þang-
að til hann tæki á móti honum. Hann sagðist að vísu ekki
geta nefnt stund og dag í þessu sambandi, en myndi hik-
laust trúa mér fyrir því, ef hann vissi það sjálfur, en um
þetta væri sér ekki unnt að fullyrða neitt. „Það getur
dregizt mánuði að hann komi hingað, en vel getur verið
réttara að tala þar um vikur, og mér þykir sjálfum senni-
legra út frá minni eigin þekkingu á heilsu hans, að ekki
verði nema um vikur að ræða, og án þess að ég geti full-
yrt nokkuð um þetta, þá er það að vísu grunur minn, að
við bræðurnir verðum búnir að hittast, áður en næsti
mánuður verður að fullu liðinn".
Hann reyndist sannspár í þessum efnum, því að eins og