Hugur - 01.01.2006, Page 48

Hugur - 01.01.2006, Page 48
46 Jóhann Bjömsson sem Sartre vill vera láta. Valdatogstreitan sem á sér stað manna á milli, fyrir meðalgöngu augnaráðsins, er ekki dæmigerð fyrir mannleg samskipti þó að slík samskipti eigi sér vissulega stað. Samskipti af þessum toga kallar Merl- eau-Ponty ómannleg og talar um „ómennskt augnaráð" í því samhengi. Þetta augnaráð á aðeins við ef hvert okkar um sig neitar að setja sig í spor annarra og skilja þá hegðun sem á sér stað, og lætur eins og breytni okkar sé alveg eins og hver önnur breytni dýrs.24 Afstaða þessi í samskiptum er vissulega til og raunar er hún ekki ýkja óal- geng að mati Merleau-Pontys; til dæmis á hún sér stað þegar maður mætir ókunnugum. Augnaráð hins getur auðveldlega vakið hjá mér skömm og van- mátt. Það þýðir samt ekki að hér sé um grunngerð mannlegra samskipta að ræða. Hinn er þegar til staðar í reynsluheimi mínum áður en til augnaráðs- ins kemur og ætti hann ekki að koma mér jafn mikið á óvart og Sartre telur. Þegar ég ligg á gægjum veit ég fullvel að möguleikinn á að hinn komi að mér er ávallt til staðar. Ástæðan er sú að við tilheyrum sammannlegum heimi og þó að ég hafi gleymt mér um stund þá hef ég ekki alveg gleymt því að hinn kann að birtast hvar sem er og hvenær sem er. Að horfa áýmsan hátt Eins og fram hefur komið hjá Sartre leggur hann á það ríka áherslu að átök og togstreita séu grunngerð mannlegra samskipta sem öll önnur samskipti hljóti að byggjast á. Hinn beinir augnaráði sínu að mér, hreyfir við mér, tak- markar frelsi mitt og möguleika og ég leitast við að gera slíkt hið sama gagn- vart hinum. Vissulega á lýsing Sartre á mannlegum samskiptum við rök að styðjast. Samskiptin sem hann lýsir eru ekki óalgeng, fólk beinir hatursfullu augnaráði hvert að öðru, ræðst hvert að öðru með hótunum og skömmum, fær aðra til þess að skammast sín og finna fyrir vanmætti sínum. Sartre nefn- ir þar að auki ágæt dæmi sem styðja mál hans, en það vekur einmitt athygli að í Veru og neind ræðir Sartre aldrei önnur dæmi um augnaráðið en þau sem styrkja skoðun hans um að mannleg samskipti einkennist af togstreitu og átökum. Hann nefnir dæmi um neyðarlegar aðstæður þar sem skömmin og óttinn eru allsráðandi, þar sem einstaklingurinn sem hlut á að máli vill helst hverfa á braut og losna undan ógn hins. En hér er aðeins hálf sagan sögð. Þó að samskipti sem þessi séu allalgeng er það rétt hjá Merleau-Ponty og öðrum gagnrýnendum Sartres25 að þetta getur ekki talist tæmandi lýsing á mannlegum samskiptum og því síður er þetta sá hluti þeirra sem kalla má grunngerð mannlegra samskipta. Sartre lætur hjá líða að ræða aðstæður þar sem vonin og ánægjan er í fyrirrúmi. 24 Sbr. sama rit, s. 419; ensk útg., s. 361. 25 Sbr. Robert G. Olson, An introduction to Existentialism (Dover Publications 1962), Hazel E. Barnes, Sartre (JB Lippincott Company 1973), M. De Tollenaere, „Intersubjectivity in Jean- Paul Sartre", International Philosophical Quarterly, 5. árg., 2. tbl. (1965).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.