Hugur - 01.01.2006, Page 138

Hugur - 01.01.2006, Page 138
136 Maurizio Ferraris og hann var viss um cogito-ið, hefði honum ekki verið kleift að styðjast við það sem á sér tilvist hið ytra, óháð því hvers kyns vafa mátti umvefja það? Er yfirhöfuð mögulegt að staðsetja þann punkt þar sem endurtekning hugsjón- areðlisins „út í það óendanlega", að því leyti sem það beinist að einhverju, heldur sig við hið uppálagða líkan hins hreina hugsjónareðlis í stað þess að láta það víkja sæti fyrir tiltekinni reynslu sem á sér að fullu og öllu stað inn- an marka endanlegs lífs, þ.e. innan marka þess sem beinist að einhverju sem er í grundvallaratriðum tilfallandi og reynslu háð? Með enn öðru orðalagi: væri hugsjónareðlið af meiði ódauðlegrar nautnar sem hlýst af eih'fri nútíð, byggi það yfir eiginleikum hrings frekar en hnu sem er í grófum dráttum samfelld og bein. En teygi hugsjónareðlið úr sér eins og lína, þiggur það þá ekki margvíslegt gildi sitt af ytri reynslu, sér í lagi reynslunni af tímanleikan- um? A hinn bóginn má spyrja, og hér kemur til hinn hátturinn sem hið reynslubundna virðist hafa á því að skilyrða hugsjónina: ef ekki kæmi til hið óskrifaða blað (tabula rasa) og ákveðinn lágmarksfjöldi tákna, hvernig gæti þá hugsjónareðli, af hvaða tagi sem vera skal, orðið til? 3. Þriðji vandinn, sem virðist sameina hina tvo, snýst um tengsl óendanleik- ans og hins ótakmarkaða. Á grundvelli þess sem Rökfrœðilegar rannsóknir leiða í ljós, það er á grundvelli þess texta þar sem Husserl reynir af meira afli en nokkru sinni fyrr eða síðar að uppfylla hina heimspekilegu þrá eftir algerri og undanbragðalausri nærveru, gerum við okkur grein fyrir því að innan endanlegs lífs eins og þess sem er hlutskipti okkar er óendanleikinn aðeins gefinn sem hugsjón. En aðpvíleyti sem óendanleikinn er hugsjón er hann ein- hvers staðar undarlega nærri. Þótt hugmyndin um hreina rökfræði búi aðeins yfir merkingu sem forskrift í okkar huga getum við ómögulega efast um að sem hugmynd er hún okkur annað og meira en einbert lokamark [telos). Hún á sér líka tilvist, rétt eins og frummyndir Platóns, tilvist þar sem hún verður fyllilega að veruleika. Það sem hér er á ferðinni er sá vandi sem Frege glímdi einnig við: að draga mörk hugmyndaheims þar sem hrein hugsun getur átt sér stað en er jafnframt aðgreindur frá þeim sem hugsar þessa hreinu hugs- un. Fyrir sitt leyti gerði Husserl sér mynd af sh'ku umdæmi með skírskotun til þess sem er frábrugðið hinu reynslubundna eða slær því á frest. I skilningi sem stendur nærri Hegel er það hinn náttúrulegi dauði sem leiðir hið and- lega fram. Sérhverri huglægri og tilfallandi segð má skipta út fyrir hlutlæga án þess að hrófla við ætlandi \intentionality\ hennar. Þetta er í öllu falli það sem hugmyndin um hreina rökfræði kveður á um, og þá hugmynd verður að skilja að hætti Kants: „I raunveruleikanum," skrifar Husserl í sjöttu Rök- fræðilegu rannsókninni, „er ljóst að þegar við segjum að hlutlæg segð geti komið í stað sérhverrar huglægrar segðar, erum við í grundvallaratriðum að- eins að halda því fram að hlutlæg skynsemi eigi sér engin takmörk." Að þessu sögðu má það heita höfuðeinkenni Rökfræðilegra rannsókna - og eftir á að hyggja sjáum við að hughyggja Hugmyndanna (Ideen, 1913) kemur í beinu framhaldi af þessu - að vangaveltur um ferli af þessum toga eiga sér stað undir merkjum hugsjónarinnar fremur en raunveruleikans, hins forskil-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.