Hugur - 01.01.2006, Page 151

Hugur - 01.01.2006, Page 151
Tilurð ogformgerð“ ogfyrirbœrafrœðin 149 um yfirvegunarinnar verði hugsun hans móttækilegri en ella fyrir sögulegu eðli merkingarinnar og mögulegri framtíð hennar, og taki meira tillit en ella til hvers kyns eyða í formgerðinni. Þó að sú skoðun kunni að láta á sér kræla að opið í formgerðinni sé „formgerðarbundið“, þ.e. eðlislægt, er maður þar með kominn yfir á allt annað svið: mismunurinn á minni formgerðinni - sem er nauðsynlega lokuð — og formgerðareinkennum opsins er ef til vill sá óstað- setjanlegi staður þar sem heimspekin skýtur rótum. Sér í lagi þegar hún tal- ar um formgerðir og lýsir þeim. Þannig virðist togstreitan milli aðferðar sem miðast við tilurð og aðferðar sem miðast við formgerð allt frá upphafi þröngva sér upp á sérkenni þess sem gefst hinni óspjölluðu sýn. Og hefði spurningin „formgerð eða tilurð?" verið lögð fyrir Husserl formálalaust, þori ég að veðja að hann hefði undrast mjög yfir því að vera kallaður til leiks í slíkri deilu. Hann hefði svarað því til að það færi eftir því hvað menn teldu sig vera að tala um: sumu beri að lýsa með skírskotun til formgerðar, öðru með skírskotun til tilurðar. Merkingin myndar setlög sem hafa á sér kerfis- brag, líta út eins og samsettar heildir eða bera svip af kyrrstæðum formum. I iðrum þeirra er hreyfing eða tilurð möguleg innan marka þeirra reglna og þeirrar virku merkingar sem viðkomandi formgerð býr yfir. Önnur setlög, hvort sem þau liggja dýpra eða nær yfirborðinu, koma í ljós með þeim hætti sem einkennir sköpun og hreyfingu, uppruna, framvindu eða hefð. Þetta krefst þess að um þessi atriði sé rætt á máli tilurðarinnar, að því gefnu að slíku máli sé til að dreifa eða að það sé eitt og aðeins eitt. Aherslan á mikilvægi fyrirbærafræðilegrar lýsingar og trúnaðurinn við hana endurspeglast í því hversu samkvæmur Husserl var sjálfum sér allan sinn feril - að minnsta kosti á yfirborðinu. Til að leiða þetta í ljós nefni ég tvö dæmi. 1.1 Heimspeki reikningslistarinnar (Philosophie der Arithmetik, 1891) leggur Husserl stund á tilurðarrannsóknir. Þessi bók var reyndar sú eina sem hann sneri síðar baki við - vegna þeirrar aðferðar og þeirra sálarhyggjuforsendna sem þar var notast við. I Rökfræðilegum rannsóknum (Logische Untersuchungen, 1900-01) fólst verkefnið umfram allt í því að lýsa hlutlægni hlutlægra ein- inga af toga hugsjóna \objectités idéales\ með skírskotun til óhagganleika þeirra og þess hvernig þær eru óháðar tíma og huglægri framvindu. Þróun hugsunar Husserls frá fyrra verkinu yfir í það síðara ber öll merki samfelldr- ar skýringarviðleitni. Um það er Husserl svo viss að tæpum fjórum áratug- um síðar skrifar hann: Þegar í verki mínu Heimspeki reikningslistarinnar (1891) hóf ég að beina sjónum að formlegum þáttum og öðlaðist frumskilning á merkingu þeirra. Eins ófullkomið byrjendaverk og það var, fólst í því ákveðin frumtilraun til að varpa skýru ljósi á eiginlega merkingu grunnhugtaka mengja- og talnafræðinnar sem væri upprunanum trú. Þessi tilraun fólst í athugun á þeim sjálfsprottnu athöfnum að leggja saman og telja sem láta á upprunalegan og skapandi hátt söfn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.